FL framlengir frest til að bjóða sig fram í stjórn og önnur trúnaðarstörf

Kjósa skal stjórn FL í allsherjaratkvæðagreiðslu eigi síðar en 6 vikum fyrir aðalfund sem haldinn verður 14. og 15. maí 2018. Í önnur trúnaðarstörf er kosið á fundinum.
Framboðsnefnd Félags leikskólakennara hefur ákveðið að framlengja frest til að bjóða sig fram og/eða tilnefna til stjórnar og annarra trúnaðarstarfa fyrir næsta kjörtímabil, 2018 til 2022. Framboðsfrestur er til 30. janúar næstkomandi.
Um er að ræða eftirfarandi trúnaðarstörf:
- 8 fulltrúa í stjórn (4 aðal og 4 vara) – röð fer eftir atkvæðamagni
- 10 fulltrúa í samninganefnd (5 aðal og 5 vara) – röð fer eftir atkvæðamagni
- 8 fulltrúa í skólamálanefnd (4 aðal og 4 vara) – röð fer eftir atkvæðamagni
- 6 fulltrúa í framboðsnefnd (3 aðal og 3 vara) – röð fer eftir atkvæðamagni
- 3 fulltrúa í kjörstjórn og 3 varamenn – röð fer eftir atkvæðamagni
Á heimasíðu er hægt að lesa sér til um hlutverk stjórnar og nefnda og greiðslufyrirkomulag vegna fundarsetu o.fl.
Kjósa skal stjórn FL í allsherjaratkvæðagreiðslu eigi síðar en 6 vikum fyrir aðalfund sem haldinn verður 14. og 15. maí 2018. Í önnur trúnaðarstörf er kosið á fundinum.
Allir frambjóðendur (líka þeir sem eru í trúnaðarstörfum núna og hyggjast gefa kost á sér aftur) skulu senda tölvupóst á frambodsnefndfl@ki.is. Í póstinum skal koma fram:
- Nafn
- Kennitala
- Starfsheiti
- Vinnustaður
- Mynd í viðhengi
Framboðum og tilnefningum skal skila fyrir 30. janúar 2018.
Framboðsnefndina skipa Margrét Inga Guðbjartsdóttir, leikskólanum Akraseli Akranesi, Kristjana Jóna Jóhannsdóttir, leikskólanum Vallaseli Akranesi og Ingibjörg Guðmundsdóttir, leikskólanum Holti Reykjanesbæ.