FL aflýsir fundum vegna veðurs en efnir þess í stað til fjarfundar

Fréttir|1. desember 2015

Breyting verður á fyrirkomulagi kynningarfunda um nýjan kjarasamning Félags leikskólakennara vegna veðurs og ófærðar. Til stóð að fulltrúar FL myndu funda með félagsmönnum á Egilsstöðum og í Vestmanneyjum í dag. Af því verður ekki og auk þess hefur kynningarfundi sem átti að vera á Ísafirði á morgun verið aflýst. 

Þess í stað verður efnt til fjarfundar sem sendur verður út frá Reykjavík klukkan 17 í dag, 1. desember. Hægt verður að fylgjast með og taka þátt í fundunum á eftirtöldum stöðum: 

  • Ísafjörður – Fræðslumiðstöð Vestfjarða
  • Húsavík – Þekkingarnet Þingeyinga
  • Vopnafjörður – Austurbrú
  • Egilsstaðir – Austurbrú
  • Vestmannaeyjar – Fræðslunetið

Félag leikskólakennara vonar að sem flestir félagar geti sótt fundina í dag.