Fjörugar umræður á fundum um lífeyrismál
Fréttir|29. september 2016
Kennarasambandið stóð í vikunni fyrir tveimur kynningar- og umræðufundum um lífeyrismál. Á fundunum fór Þórður Á. Hjaltested, formaður KÍ, yfir helstu atriði í ný gerðu samkomulagi KÍ, BHM og BSRB við ríki og sveitarfélög um nýtt fyrirkomulag lífeyrismála opinberra starfsmanna. Eftir stutta kynningu gafst fundarmönnum, sem og þeim sem horfðu á fundina á netinu, færi á að spyrja Þórð Hjaltested, sem og formenn aðildarfélaga KÍ, út í samkomulagið.
Fjörugar umræður sköpuðust um málið á báðum fundum, þrátt fyrir að fremur fáir félagsmenn KÍ hafi sótt þá. Félagsmenn sem hafa áhuga á að kynna sér málið eru hvattir til að horfa á upptöku af fundunum hér fyrir neðan.
{vimeo}184814035{/vimeo}
{vimeo}184666157{/vimeo}