Fjórtán bjóða sig fram í stjórn FG
Fréttir|28. febrúar 2026

Frestur til að bjóða sig fram til stjórnar Félags grunnskólakennara rann út á hádegi í dag.
Kjörnefnd FG hefur tilkynnt að fjórtán félagar í FG eru í framboði til stjórnar félagsins.
Frambjóðendur í stafrófsröð
- Anna Guðrún Jóhannesdóttir, varaformaður Félags grunnskólakennara
- Álfhildur Leifsdóttir, kennari í Árskóla
- Eva S. Káradóttir, kennari í Grunnskólanum Þorlákshöfn
- Fjóla Margrét Hrafnkelsdóttir, kennari í Egilsstaðaskóla
- Geirlaug Ottósdóttir, kennari í Álftamýrarskóla
- Guðbjörg Íris Atladóttir, kennari í Rimaskóla
- Hildur Sigfúsdóttir, kennari í Heiðarskóla
- Hreiðar Oddsson, kennari í Álfhólsskóla
- Íris Árný Magnúsdóttir, kennari í Vallaskóla
- Kolbrún Guðmundsdóttir, kennari í Sunnulækjarskóla
- Kristín Björnsdóttir, kennari í Ingunnarskóla
- Margrét Össurardóttir, kennari í Hvaleyrarskóla
- Sigurður Freyr (Bibbi) Sigurðarson, kennari í Brekkuskóla
- Örlygur Þór Helgason, kennari í Helgafellsskóla
Kynning og kosningar
Frambjóðendur munu innan fárra daga kynna sig á sérstakri kosningasíðu FG.
Stjórnarkjörið fer fram á Mínum síðum á vef KÍ. Kosnir verða sex aðalfulltrúar og fimm til vara.
- Atkvæðagreiðsla hefst mánudaginn 2. mars kl. 12:00
- Atkvæðagreiðslu lýkur fimmtudaginn 5. mars kl. 12:00
Ný stjórn Félags grunnskólakennara tekur við á aðalfundi félagsins næsta haust. Kjörtímabilið er frá 2026 til 2030.
Félagsfólk FG er hvatt til að kynna sér frambjóðendur og taka þátt í kosningunni.