Fjórðungur hefur greitt atkvæði um samkomulag FT

Alls höfðu 25,8 prósent félagsmanna í FT greitt atkvæði, um nýtt samkomulag sem felur í sér framlengingu kjarasamnings, á hádegi í dag.
Atkvæðagreiðsla um framlengdan kjarasamning Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum stendur yfir. Skrifað var undir samkomulagið 14. desember síðastliðinn og hófst atkvæðagreiðsla á hádegi föstudaginn 15. desember.
Á hádegi í dag höfðu 25.8% félagsmanna greitt atkvæði.
Atkvæðagreiðslan stendur til klukkan tólf á morgun, þriðjudaginn 19. desember.
Framkvæmd atkvæðagreiðslu
Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á vef KÍ. Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Rafrænum skilríkjum eða Íslykli.
- Þegar komið er inn á Mínar síður birtist kosningin.
- Smellið á tengilinn sem heitir Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FT 2023.
- Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.
- Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
Kjósa má aftur, en um leið ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.
Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.
Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir. Hægt er að ná á Fjólu með því að senda póst á netfangið fjola@ki.is eða hringja í síma 595 1111.