Fjöltyngi í skólastofunni: Allir nemendur eiga að hafa rödd

Brynja Stefánsdóttir, tungumálakennari við Fjölbrautaskólann í Breiðholti, hlaut styrk frá Landskrifstofu Erasmus+ í nóvember 2023 til að taka þáttt í vinnustofunni Democracy speaks in many languages – what is sufficient? sem haldin var í Norður-Finnlandi. Hún segir frá upplifuninni í nýjasta eintaki Skólavörðunnar.
Vinnustofan var skipulögð af finnska menntamálaráðuneytinu í samstarfi við Landskrifstofu Erasmus+ í Finnlandi og var markmiðið að þátttakendur myndu öðlast nýjan skilning, hugmyndir, færni og innblástur til að styðja við fjöltyngi í kennslustofunni. Brynja setti saman skemmtilega ferðafrásögn, sem fer hér á eftir, þar sem hún segir meðal annars frá mikilvægi móðurmálskennslu.
Finnar líta á fjöltyngi sem auð og rannsóknir sýna að styrking móðurmáls (L1) hefur bein áhrif á færni í öðrum tungumálum. Barn með slakan orðaforða í sínu móðurmáli á erfiðara með að auka orðaforða sinn í tungumálanámi. Finnar leggja því áherslu á að öll börn fái móðurmálskennslu samhliða námi sínu í finnsku skólakerfi og ríkið greiðir fyrir þrjár kennslustundir á viku í móðurmálskennslu. Á grunnskólaaldri skal börnum tryggð aðstaða og kennsla sem hluti af skóladeginum en á eldri stigum leggst móðurmálskennsla oft ofan á hefðbundinn skóladag nemenda.
Samar eru eina upprunalega (e. indigenous) þjóðin í Evrópusambandinu sem ekki á sitt eigið land. Samar héldu til á svæði sem nú tilheyrir Noregi, Svíþjóð og Rússlandi auk Finnlands. Bara í Finnlandi eru þrjú samísk mál; norðursamíska, skoltsamíska og inarisamíska. Þessi þrjú mál eru ólík og í grunnskólum er jafnvel kennt á öllum þessum tungumálum, sama hversu litlir hóparnir eru. Sem dæmi er skoltsamíska fyrsta tungumál 300 einstaklinga og því eru mjög fá börn á grunnskólaaldri sem fá kennslu á skoltsamísku.
Eitt mikilvægasta verkefni tungumálakennarans er að gera nemandanum kleift að finna sínar eigin námsleiðir. Kenna honum að spyrja og láta í ljós efa þegar hann skilur ekki vel.
Þrátt fyrir það er vandað kennsluefni gefið út á tungumáli þeirra. Því er ljóst að mikill áhugi, skilningur og vilji er til þess að styðja við þessa upprunalegu þjóð og snúa hnignun tungumálsins við. Eljan sem Samar sýna við að endurvekja samísku tungumálin og barátta þeirra við að missa ekki þessa tengingu við forfeður sína er góð áminning til okkar Íslendinga um að standa vörð um tungumálið okkar.
Á málstofunni var einnig fjallað um tengsl tungumálaskilnings og lýðræðis. Í fyrirlestri sínum kom prófessor Jim Cummins inn á lýðræði, sem hann segir eiga undir högg að sækja. Samkvæmt honum er gagnrýnin hugsun á undanhaldi og umhverfið sífellt svart-hvítara, þ.e.a.s. við erum annað hvort með eða á móti, erum vinir eða óvinir, og efni sem ekki þykir rétt eða hollt er í auknum mæli bannað. Lykillinn að því að sporna við þessari þróun er að auka læsi, gagnrýna hugsun og tryggja að allir nemendur hafi rödd.

Námskeiðshópurinn í gönguferð í Inari.
Hugtakaskilningur og geta nemenda til að kljást við akademískan orðaforða helst í hendur. Að viðurkenna gildi fjöltyngis styrkir sjálfsmynd nemenda og eykur líkurnar á velgengni þeirra í námi. Heili sem glímir við meira en eitt tungumál myndar fleiri tengingar sem svo eykur getu heilans til að mynda nýjar tengingar sem byggja á því ílagi sem við höfum fóðrað hann með. Þannig getum við dregið ályktanir, leitt líkur að niðurstöðum og aukið læsi.
Mismunandi nálganir að tungumálakennslu voru einnig á dagskrá á málstofunni. Prófessor Minna Suni sagði frá finnskri langtímarannsókn á raunveruleika ungra innflytjenda sem störfuðu í byggingariðnaði þrátt fyrir litla þekkingu í finnsku. Sú rannsókn nær utan um fjölmargar doktorsrannsóknir og gefur því mjög góða mynd af raunveruleika þess hóps. Suni bendir á að eitt mikilvægasta verkefni tungumálakennarans sé að gera nemandanum kleift að finna sínar eigin námsleiðir. Kenna honum að spyrja og láta í ljós efa þegar hann skilur ekki vel. Þannig lærir hann að finna upplýsingar og lærir svo aðferðir til þess að stækka orðaforða sinn.