Fjölskylduparadís á norðanverðum Vestfjörðum

Vestfirðir eru rómaðir fyrir náttúrufegurð. Orlofssjóður á fína íbúð við Tungubraut á Ísafirði sem ætti að henta mörgum félagsmönnum.
Hægt er að fullyrða að flestir Íslendingar hafi hugsað sér að sækja Vestfirðina heim einhvern tímann á lífsleiðinni. Kaup Orlofssjóðs á íbúðinni við Tungubraut á Ísafirði gefur félögum kærkomið tækifæri til að tikka í þennan reit á óskalistanum.
En hvað er skemmtilegt að gera á svæðinu? Mikilvægt er að vera á bíl svo hægt sé að skoða perlurnar í nálægum fjörðum. Það er nefnilega kjörið að taka dags-ferðir frá Ísafirði í allar áttir.
Allt í kring og fyrir ofan Ísafjörð er búið að leggja göngustígakerfi og er áhugavert að labba úr Tungubraut upp fyrir bæinn að snjóflóðavarnargörðunum. Þetta eru svakaleg mannvirki sem erfitt er að átta sig á fyrr en maður stendur uppi á þeim og finnur til smæðar sinnar undir ægifagurri fjallshlíðinni. Í bænum sjálfum er tilvalið að kíkja við í Safnahúsinu þar sem bókasafnið og fleira er til húsa. Neðar í bænum eru kaffihús, verslanir, minjasafnið og bjórstofa ásamt fleiru.
Hægt er að fara í dagsferðir frá Ísafirði með bátum yfir í friðland Hornstranda og mælum við eindregið með heimsókn á Hesteyri. Það
Það er svo ótrúlega margt sem maður lærir af því að heim-sækja eyðiþorp utan alfara-leiðar og saga Hesteyrar er eins einstök og þorpið sjálft.
Súðavík stendur við Álftafjörð og og þar er rekið Melrakkasetrið; safn og rannsóknarsetur tileinkað tófunni. Þar er hægt að fræðast á skemmtilegan hátt um refinn og hitta fyrir lifandi refi. Eftir hressingu á kaffihúsi setursins er best
Það verður enginn svikinn af því að leggja leið sína uppá Bolafjall fyrir ofan Bolungarvík. Búið er að byggja einstakan útsýnispall fyrir ferðamenn og tilfinn-ingin þegar farið er út á pallinn er eins og að ganga fram af fjallsbrúninni.
Útsýnið er stórbrotið í allar áttir og sumir segjast sjá alla leið til Grænlands *hóst*.
best að halda í botn fjarðarins og ganga upp að Valagili sem er mikilfenglegt gil í stórbrotnu landslagi einungis tveimur kíló-metrum frá góðu bílastæði. Gangan hentar öllum og er þægileg og vel merkt.
Á leiðinni aftur til Ísafjarðar má gefa sér tíma til að stoppa í Raggagarði sem er frábært leiksvæði fyrir börn á öllum aldri. Þar er líka grillaðstaða, sæti og salerni.
Eftir ferð uppá Bolafjall er hægt að keyra veginn á enda til Skálavíkur ef veður er gott. Bolungavík sjálf geymir fína sundlaug með heitum pottum á útisvæði og hægt er að treysta því að búið er að hella upp á kaffi fyrir fólk til að sækja sér í pottana.
Heimsókn í sjóminjasafnið Ósvör er einnig ómissandi. Í leiðinni er hægt að ganga inn á gömlu Óshlíðina til að sjá hvað náttúran er búin að taka hratt yfir mannanna verk og éta upp gamla veginn.
Sjóminjasafnið Ósvör. Óshólaviti er nálægt safninu.
Til að heimsækja Flateyri við Önundarfjörð þarf að keyra í gegnum Vestfjarðagöngin en þau eru einbreið að stórum hluta til. Í þorpinu er hægt að rölta um og njóta sjávarloftsins. Á göngunni er tilvalið þræða sig í gengum þorpið og leita uppi fuglaverk listakonunnar Jean Larson sem eru að finna á 13 húsveggjum hér og þar um bæinn.
Það er ekki hægt að sleppa því að fara í Holt ef maður er á annað borð kominn í Önundarfjörðinn. Þetta er ljós sjávarströnd þar sem heimamenn koma gjarnan saman á góðviðrisdögum og mikið sport að stökkva af bryggjunni í kaldan sjóinn. Ekki gleyma hlýju aukafötunum og handklæði.
Til að koma hita í kroppinn er svo kjörið að stoppa á Kaffi Sól í Breiðadal, en það minnir meira á að heimsækja vin í sveitinni en að fara á kaffihús.