Fjölmennum í kröfugöngur dagsins!

Fréttir|1. maí 2026

Baráttudagur verkalýðsins er runninn upp. Opið hús hjá KÍ og hátíðarhöld hringinn um landið.

Styrkur okkar er velferð allra!

Svo hljóðar yfirskrift dagsins. Kennarasambandið hvetur félagsfólk til að taka þátt í viðburðum dagsins. 

OPIÐ HÚS hjá KÍ

Félagsfólk er hjartanlega velkomið í höfuðstöðvar Kennarasambandsins við Borgartún, milli 15 og 17. Boðið verður upp á kaffiveitingar og lúðrasveitartónlist. 

Hvar hittist göngufólk?

Kennarasambandsfólk kemur saman við leikskólann Grænuborg, við Eiríksgötu, klukkan 13:30. 

Fyrsti Mai

Kennarasambandið leikur stórt hlutverk á Akureyri

Formaður Kennarasambandsins, Magnús Þór Jónsson, flytur hátíðarræðu á útifund á Akureyri. Guðjón Hreinn Hauksson, formaður FF, verður kynnir og ávarp stéttarfélaganna flytur Erla Rán Kjartansdóttir, formaður BKNE. Þá sjá nemendur í MA og VMA um skemmtiatriði. 

Dagskráin á Akureyri

  • 13:45  Göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið
  • 14:00  Lagt af stað við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar

Hátíðardagskrá á Ráðhústorgi að lokinni kröfugöngu

  • Fundarstjóri er Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara
  • Ávarp 1. maí nefndar stéttarfélaganna – Erla Rán Kjartansdóttir, formaður Bandalags kennara á Norðurlandi eystra
  • Hátíðarræða – Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands
  • Leikfélag Menntaskólans á Akureyri sýnir atriði úr söngleiknum Ljóska í gegn
  • Leikfélag Verkmenntaskólans á Akureyri sýnir atriði úr leikritinu Ronja ræningjadóttir

Grillaðar pylsur og skátatívolí að dagskrá lokinni.

 

Kröfuganga og baráttufundur á Akranesi

Kennarasambandið tekur þátt í 1. maí viðburði á Akranesi eins og fyrri ár. 

Skoða dagskrá