Fjölmennum í kröfugöngu á baráttudegi verkalýðsins

Fréttir|26. apríl 2023

Kennarasambandið hvetur félagsfólk til að fjölmenna í kröfugöngu á baráttudegi verkalýðsins, 1. maí næstkomandi. Kröfugöngur verða farnar víða um land og er yfirskrift dagsins Réttlæti, jöfnuður, velferð.

Fyrsti maí, baráttudagur verkalýðsins, verður sögulegur í ár en öld er síðan fyrsta kröfugangan var farin í Reykjavík. Það var árið 1923 en að undirbúningi stóðu fulltrúaráð verkalýðsfélaganna með þau Ólaf Friðriksson, Hendrik Ottósson og Þuríði Friðriksdóttur í fararabroddi. Í þessari fyrstu kröfugöngu voru meðal annars settar fram kröfur um bann við næturvinnu og helgidagavinnu. Þá var krafa gerð um greiðslu atvinnuleysisbóta og algert áfengisbann. 

Förum 100 ár áfram. Hátíðarhöldin í Reykjavík næstkomandi mánudag, 1. maí, verða með þeim hætti að safnast verður saman á Skólavörðuholti klukkan 13.00. Yfirskrift dagsins er Réttlæti, jöfnuður, velferð. 

Gangan leggur af stað klukkan 13:30 og verður gengið niður Skólavörðustíg en það hefur aldrei verið gert áður. Þaðan liggur leið niður Bandastræti og út Austurstrætið að Ingólfstorgi. Tónlistarflutningur verður í höndum Lúðrasveitar verkalýðsins og Lúðrasveitarinnar Svans. 

Útifundur hefst á Ingólfstorgi klukkan 14:10. Fundinum stýrir Magnús Norðdahl. Ræður flytja Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, og Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður RSÍ. Að ræðuhöldum loknum leika Dimma og Stefanía Svavars tónlist. Fundinum lýkur með fjöldasöng. 

Að viðburðinum standa Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Reykjavík, BSRB, BHM og Kennarasamband Íslands. 

Félagsfólk í Kí er hvatt til að mæta í gönguna og ganga fylktu liði á Ingólfstorg. 

 

Opið hús í Borgartúni

Kennarasambandið hefur ákveðið að bjóða félagsfólki að heimsækja nýlegar höfuðstöðvar sambandsins við Borgartún 30, 6. hæð, í tilefni dagsins. Boðið verður upp á kaffi og konfekt á milli klukkan 15 og 17. 

 

Boðskapur og saga baráttudags verkalýðsins

 


Réttindin sem hafa áunnist hafa ekki orðið til af sjálfu sér. Það þurfti að berjast fyrir þeim!


Í byrjun 20. aldar þurfti fólk að strita tíu tíma á dag, sex daga vikunnar. Jafnvægi milli vinnu og einkalífs hefur sem betur fer batnað síðan þá. Það gerðist þó ekki af sjálfu sér.


Láttu í þér heyra! Í ár eru 100 ár frá því að fyrsta kröfuganga verkalýðsins var gengin á Íslandi. 


Fæðingarorlof, veikindaréttur og orlofsréttur, þetta hafðist ekki af sjálfu sér. Það þurfti að berjast fyrir þessu.


Vissir þú að verkafólk hafði engan orlofsrétt hér áður fyrr?


Láttu í þér heyra! Í ár eru 100 ár frá því að fyrsta kröfuganga verkalýðsins var gengin á Íslandi. Fögnum 1. maí með því að ganga fylktu liði niður Skólavörðustíg og krefjumst réttlátara samfélags.