Fjölmennum á baráttufund í dag

Fréttir|4. nóvember 2024

Við efnum til baráttufundar undir yfirskriftinni Framtíðin er húfi – fjárfestum í kennurum, í Háskólabíó á miðvikudag, klukkan 16:30.

Ólafía Hrönn Jónsdóttir leikkona verður í hlutverki fundarstjóra. Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, mun ávarpa samkomuna og einnig kennararnir Egill Helgason og Hulda María Magnúsdóttir. Tónlistarmennirnir Valdimar og Örn Eldjárn flytja tónlist og svo verður óvænt tónlistaratriði um miðbik fundarins.

Við hvetjum félagsfólk til að fjölmenna á fundinn. Sýnum samstöðu og baráttuhug í baráttunni fyrir bættum kjörum. 

Dagskrá fundar

  • Húsið opnar klukkan 16.00 og Lúðrasveit verkalýðsins spilar þegar gesti ber að garði. 
  • Fundur settur klukkan 16.30. Fundarstjóri er Ólafía Hrönn Jónsdóttir leikkona.
  • Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, heldur ræðu.
  • Tónlistaratriði: Valdimar Guðmundsson og Örn Eldjárn.
  • Egill Helgason og Hulda María Magnúsdóttir kennarar ávarpa kollega sína. 
  • Óvænt atriði
  • Ályktun lesin upp og borin undir fund
  • Tónlistaratriði: Valdimar Guðmundsson og Örn Eldjárn.

Sjáumst öll á baráttufundi!