Fjölmennt samþykkti kjarasamning

Fréttir|26. maí 2023

Allir sem tóku þátt í atkvæðagreiðslu um nýjan samning KÍ og Fjölmenntar sögðu já. Kosningaþátttaka var 73 prósent.

Kennarar og stjórnendur hjá Fjölmennt hafa samþykkt samkomulag Kennarasambands Íslands, vegna framhaldsskóla, (FF og FS), um breytingar og framlengingu á kjarasamningi aðila, sem skrifað var undir þann 23. maí 2023 með fyrirvara um samþykki félagsmanna. Öll atkvæði féllu með samningnum.

Allsherjar atkvæðagreiðsla stóð dagana 24. maí til 26. maí.

Niðurstaðan er þessi

  • Á kjörskrá voru 15
  • Atkvæði greiddu 11 eða 73,33%
  • Já sögðu 11 eða 100%
  • Nei sögðu 0 eða 0%
  • Auðir 0 eða 0%

Hér er hægt að nálgast samninginn.