Fjölmennt og Verzló samþykktu kjarasamning
Fréttir|28. maí 2020

100 prósent þeirra sem tóku þátt í atkvæðagreiðslu um nýjan samning KÍ og Verzlunarskólans sögðu já.
Kennarar og stjórnendur í Verzlunarskóla Íslands og hjá Fjölmennt hafa samþykkt samkomulag Kennarasambands Íslands, vegna framhaldsskóla, um breytingar og framlengingu á kjarasamningi aðila. Allir sem tóku þátt í atkvæðagreiðslunni í Verzlunarskólanum sögðu já, en 89 prósent hjá Fjölmennt. Enginn sagði nei. Kjörsókn var 79 prósent í Verzló og 60% hjá Fjölmennt.
Niðurstaða atkvæðagreiðslu í Verzló
- Á kjörskrá var 81
- Atkvæði greiddu 64 eða 79,01%
- Já sögðu 64 eða 100%
- Nei sögðu 0 eða 0%
- Auðir voru 0 eða 0%
Niðurstaða atkvæðagreiðslu hjá Fjölmennt
- Á kjörskrá voru 15
- Atkvæði greiddu 9 eða 60,00%
- Já sögðu 8 eða 88,89%
- Nei sögðu 0 eða 0%
- Auðir 1 eða 11,11%