Fjölmennt í samstöðugöngu á Akureyri

Fjölmenn samstöðuganga kennara af öllum skólastigum og -gerðum fór fram í gær, 12. nóvember 2024, á Akureyri.
Gengið var fylktu liði frá Rósenborg, áður Barnaskóla Akureyrar, niður að Ráðhústorgi þar sem formaður Bandalags kennara á Norðurlandi eystra, Hanna Dóra Markúsdóttir, stýrði fundi. Til máls tóku Daníel Freyr Jónsson, kennari í VMA, og Hólmfríður Þorgeirsdóttir, kennari í Lundarskóla og Elísabet Þórunn Öldu Jónsdóttir, kennari í Naustatjörn. Öll fóru þau hörðum orðum um þá stöðu sem uppi er í samningamálum og kröfðust þess að ríki og sveitarfélög standi við gerða samninga og tryggi að laun félagsfólks KÍ standist samanburð við laun sérfræðinga á almennum markaði.
Guðjón Hreinn Hauksson, formaður félags framhaldsskólakennara, ávarpaði fundinn í lok dagskrár og sendi þakkar- og baráttukveðjur til kennara í verkföllum frá viðræðunefnd KÍ og einnig frá framhaldsskólakennurum á Selfossi sem eru í verkfalli.
Hilmar Friðjónsson, kennari við VMA, tók þessar fallegu myndir.