Fjölmennt í Geislabaugi

Það var fjölmenni (+70 manns) sem mætti í leikskólann Geislabaug síðdegis í gær og mikið rosalega var gaman. Þóra Jóna Jónatansdóttir leikskólastjóri, Edda Guðrún Guðnadóttir aðstoðarleikskólastjóri og Þóra Dögg Guðmundsdóttir verkefnastjóri kynntu starf leikskólans. Leikskólinn tók til starfa í ágúst 2004 og átti því 20 ára afmæli í sumar. Í fyrstu var leikskólinn sjálfstætt rekinn, en Reykjavíkurborg keypti hann af rekstraraðilum hans. Leikskólinn er rúmgóður á tveimur hæðum og starfsfólk leikskólans er einstaklega lagið við að útbúa fallegt, jákvætt andrúsloft og skapandi umhverfi fyrir bæði börn og fullorðna. Það eru ekki mörg hefðbudin leikföng í leikskólanum, en því meira af skapandi efnivið sem börnin hafa aðgang að.

Umhverfið vegur stóran þátt í uppgötvun barnsins. Nánasta umhverfi barnsins skiptir miklu máli,að læra um eigið umhverfi, taka eftir því stóra og smáa styrkir sjálfsvitund barnsins. Í Reggio Emilia hugmyndafræðinni er oft talað um umhverfið sem þriðja kennarann. Umhverfi skólans (innan sem utan) er skipulagt með það í huga að hafa áhrif. Þannig er mikilvægt að rými sem börnin búa við sé í senn hvetjandi, aðlaðandi, verndandi og fallegt. Að það sé hægt að breyta því og það sé ekki of fast bundið í ákveðið form. Þannig fá börnin tækifæri til að tjá sig á hundrað vegu.
Einkunnarorð leikskólans eru virðing, gleði, jafnrétti og sköpun.
Þóra Dögg sagði okkur frá teymum sem starfa innan leikskólans. Þetta eru teymi um læsi, félagsfærni, heilbrigði, sérkennslu og farsældarlögin. Teymin funda á fimm vikna fresti á fimmtudögum ca 30-40 mín. og það dettur aldrei niður fundur Áherslur teymanna eru samræmdar þvert yfir leikskólann eftir getu barnanna og árangur metinn reglulega á fundum teymanna. Reynsla þeirra af teymisvinnu er afar jákvæð og geta mælt með því að starfa á þennan hátt. Vinnan hefur haft gífurleg áhrif á faglegt starf, en geta má þess að á síðustu árum hefur hlutfall uppeldismenntaðra innan skólans stóraukist.
Stjórn Faghóps um skapandi leikskólastarf þakkar kærlega fyrir ánægjulegt síðdegi í Geilsabaugi. Takk fyrir faglega umræðu og fyrir að sýna okkur fallega leikskólann ykkar. Hér má sjá fullt af ljósmyndum sem við tókum.