Fjölmennt á ráðstefnu KÍ í Hörpu – myndir

Fréttir|10. apríl 2024

Ráðstefnan Skóli nútíðar – vegvísir til framtíðar fór fram í Hörpu í gær. Gestir ráðstefnunnar voru um 250 talsins og var gerður góður rómur að dagskrá og umgjörð.

Mikilvægt er að raddir skólafólks séu í forgrunni umræðunnar. Það býr þekking í þeim mannauði sem valið hefur sér þann vettvang að tryggja gæðamenntun og efla farsæld á vettvangi ólíkra skólastiga og skólagerða. Á undanförnum árum hefur komið upp að í umræðu um málefni menntunar sé frekar talað um skólafólk en við það og þá einmitt út frá þröngu sjónarhorni hvers atviks," sagði Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, í gær. 

Raddir skólafólks voru einmitt í forgrunni á ráðstefnu KÍ sem bar yfirskriftina Skóli nútíðar – vegvísir til framtíðar sem stóð allan gærdaginn í Silfurbergi Hörpu og auk þess í sölunum Rímu og Björtuloftum. Þátttaka á ráðstefnunni var afar góð, um 250 manns sóttu ráðstefnuna, fyrirlesarar voru velflestir úr hópi félagsfólks Kí en alls stigu 28 manns á stokk í það heila. 

Grunnur að umræðuefni ráðstefnunnar var fenginn úr niðurstöðum nýrrar viðhorfskönnunar sem KÍ lét gera meðal félagsfólks í febrúar. Margt áhugavert kemur fram í niðurstöðunum; svo sem um hvað veldur álagi, hópastærðir og hvort félagsfólk sér sig í starfi eftir fimm ár. 

Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, fór vel yfir helstu niðurstöður á ráðstefnunni. 

Umræðutorgin og úrvinnsla

Átta umræðutorg fóru fram á ráðstefnunni og voru umfjöllunarefnin margvísleg. Niðurstöður könnunarinnar og efni ráðstefnunnar er mikið að vöxtum og fram undan er vinna innan Kennarasambandsins, og á vettvangi aðildarfélaganna, þar sem unnið verður með efni og vísbendingar sem fram koma í könnuninni. 

„Raddir ráðstefnunnar verða raddir skólafólks. Þegar kemur að því að efla og bæta skólastarf, og auka gæði menntunar, verður hægt að sækja í könnunina; efni hennar er vegvísir til framtíðar. Fyrir liggja skólastefnur, námskrár, lög og reglugerðir um skólastarf. Við skólafólk vitum að vettvangur þeirra verkefna liggur víða um stjórnkerfið og fer um ólík svið samfélagsins. Það er á allra ábyrgð að í þeirri vinnu sem miðar að því að gera öflugt skólastarf enn betra verði raddir skólafólks í fyrirrúmi!" skrifaði Magnús Þór, formaður KÍ, í grein á Vísi.

Þá verða upptökur af umræðutorgunum átta birtar hér á vefnum innan skamms. 

Svipmyndir frá ráðstefnu KÍ í Hörpu