Fjölga þarf leikskólakennurum víðar en hér
Það vantar leikskólakennara til starfa í Noregi og Finnlandi, rétt eins og hér á landi. Í sumum leikskólum í Noregi eru aðeins 10 prósent starfsfólks fagmenntað. Sama er uppi á teningnum í Finnlandi en þar eru leikskólakennarar aðeins þriðjungur starfsmanna leikskólanna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu Haraldar Freys Gíslasonar, formanns Félags leikskólakennara, og Fjólu Þorvaldsdóttur, varaformanns Félags leikskólakennara, um þátttöku þeirra á fundi leikskóladeildar Norrænu kennarasamtakanna (NLS) sem fram fór í Osló í mars síðastliðinn.
Haraldur Freyr og Fjóla reifa stöðuna í leikskólamálum á hinum Norðurlöndunum. Þau upplýstu fundargesti um skort á leikskólakennurum hér á landi en nú vantar um 1.300 leikskólakennara til að uppfylla lög um uppeldi og menntun í leikskólum. Þá sögðu þau unnið að því að fjölga karlmönnum við kennslu og lýstu áhyggjum af nýjum áherslum á læsi í Hvítbók menntamálaráðherra. Áhyggjur fagfólks hérlendis snúast að þeirra sögn meðal annars að því að frjálsa leiknum verði ekki gert jafnhátt undir höfði og áður.
Frásögn Haraldar Freys og Fjólu er í senn fróðleg og áhugaverð. Þau segja frá umræðum um faglegar áherslur, hlutverk leikskólakennara, námskrár og heimsóknum í tvo norska leikskóla svo fátt eitt sé nefnt.
Ferðaskýrslan í heild og myndir frá ferðinni.
Bjerkealéen barnehage hefur þá sérstöðu að 60 prósent starfsmanna eru karlkyns og 60 prósent starfsmanna eru leikskólakennara. Á myndinni sjást tveir leikskólakennarar svæfa yngstu börnin.