Fjöldi starfsfólks í grunnskólum

Reiknivél sýnir þróunina frá 1998-2020 og nú eftir landsvæðum.
Hagstofa Íslands hefur birt tölur yfir starfsfólk í grunnskólum haustið 2020. Á vef Kennarasambands Íslands hefur reiknivél sem sýnir fjölda starfsfólks í grunnskólum landsins verið uppfærð. Reiknivélin sýnir þróunina frá árinu 1998 til 2020 og því heilmikið af upplýsingum sem hægt er að rýna í. Nýjungin í reiknivélinni er einnig sú að hægt er að skoða tölulegar upplýsingar út frá landsvæðum.
Haustið 2020 fjölgaði starfsfólki í grunnskólum um 5,2% frá fyrra ári og hlutfall leiðbeinenda fór úr 14,8% í 16,0% frá skólaárinu þar á undan.
Á mynd hér að neðan má sjá þróun starfsfólks við kennslu þar sem guli liturinn sýnir fólk með kennsluréttindi og sá ljósrauði starfsfólk án kennsluréttinda.
