Fjölbreyttar kennsluaðferðir

Þriðjudaginn 11. október nk. kl.14:30 til 15:50 ætlar Hlín Magnúsdóttir, deildarstjóri stoðþjónustu í Helgafellsskóla að vera með rafrænt fræðsluerindi á vegum Félags sérkennara. Hún ætlar m.a. að fjalla um fjölbreyttar kennsluaðferðir í skólastofunni og hvernig hægt er að tengja áhugasvið og forvitni nemenda við námið. Lesa meira:
Þriðjudaginn 11. október nk. kl.14:30 til 15:50 ætlar Hlín Magnúsdóttir, deildarstjóri stoðþjónustu í Helgafellsskóla að vera með rafrænt fræðsluerindi á vegum Félags sérkennara. Hún ætlar m.a. að fjalla um fjölbreyttar kennsluaðferðir í skólastofunni og hvernig hægt er að tengja áhugasvið og forvitni nemenda við námið.
Hlín hefur um árabil deilt námsefni sem hún hefur útbúið sjálf á vefsíðu sinni. Vefurinn hennar Hlínar Fjölbreyttar kennsluaðferðir fyrir fjöruga krakka var valið heiðursverkefni félagsins fyrr á þessu ári.
Fundurinn fer fram á Teams og er hægt að tengjast honum með því að smella á þennan hlekk:
Click here to join the meeting
Þið eruð öll velkomin.