Fjölbreytt námskeið hjá EHÍ á afsláttarkjörum

Fréttir|24. janúar 2025

Endurmenntun Háskóla Íslands býður upp á fjölbreytt og spennandi námskeið fyrir kennara í grunnskólum á afsláttarkjörum.

Boðið er upp á fjöldan allan af spennandi og hagnýtum námskeiðum fyrir félaga í Félagi grunnskólakennara veturinn 2024-2025 á 20% afslætti. Seigla og bjargráð ungmenna, sorg og sorgarviðbrögð barna og námskeið í mati á stöðu í talna og aðgerðarskilningi við upphaf grunnskóla eru á meðal námskeiða. Að auki er vakin athygli á fleiri vel völdum námskeiðum hér fyrir neðan. Hér er svo hægt að kynna sér námskeiðin og framboðið nánar, sem og á vef Endurmenntunar HÍ. 

Langar þig að byggja upp jákvæðari menningu í kennslustofunni?

Elísa Guðnadóttir sálfræðingur kennir fjarnámskeiðið sem fer fram 4. og 6. febrúar.

„Fer of mikill tími hjá þér á hverjum degi í að takast á við erfiða hegðun? Situr þú eftir með þá tilfinningu í lok dags að þú hafir ekki náð að koma námsefninu nógu vel til skila eða jafnvel vonleysi, depurð, þreytu eða óánægju? Ef svo er þá er þetta námskeið fyrir þig! Því á þessu námskeiði fá þátttakendur verkfæri til að snúa þessum vítahring við og byggja þannig upp jákvæða menningu og andrúmsloft í kennslustofunni með hagnýtum, einföldum og jákvæðum aðferðum fyrir bekkinn í heild.“

Fjöláfalla- og tengslavandi hjá börnum

Jóhanna Jóhannesdóttir, félags- og fjölskylduráðgjafi kennir staðnámskeiðið. Námskeiðinu er skipt upp eftir aldri barna. Vandi vegna barna frá 11-16 ára fer fram í febrúar og vegna barna að tíu ára aldri í mars. Snemmskráning er til og með 27. janúar.

„Á námskeiðinu er fjallað um mikilvægi frumbernskunnar og forsendur barns sem glímir við vanda tengdan fjöláföllum og tengslum. Skoðað er hvernig hægt er að nálgast barnið af öryggi, út frá þekkingu, með kærleik og viðeigandi mörkum að leiðarljósi með það að markmiði að draga úr þeim einkennum sem barnið sýnir sem byggja á öryggisleysi og ótta.“


Ofbeldi nemenda og hegðunarvandi

Soffía Ámundadóttir, kennari, táknmálsfræðingur með MEd frá HÍ í stjórnun menntastofnana kennir fjarnámskeiðið sem fer fram á milli klukkan 14 og 17, mánudaginn 17. mars. Snemmskráning er til og með 7. mars.

„Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist færni og innsæi á bæði ofbeldishegðun nemenda og hegðunarvanda. Kynntar eru helstu leiðir sem hægt er að fara til að hjálpa nemendum. Fjallað verður um rannsóknir á viðfangsefninu, algengi, ástæður, viðbrögð, úrræði og verkfæri sem hægt er að styðjast við til að leysa þessi viðkvæmu mál.“