Fjölbreytt lesefni eykur lestraráhuga
Lestur er að flestra mati mikilvæg undirstaða í lífi hverrar manneskju og einstaklingur sem les sér ekki til gagns á erfitt með að ná fótfestu í tilverunni. Það er því kappsmál nú sem fyrr að þeir sem ábyrgð bera á uppeldi og menntun barna stuðli markvisst að því að börn verði læs. Það má gera með margvíslegum hætti. Lestur virðist fara minnkandi og þeim fækkar sem geta lesið sér til gagns. Strax í öðrum bekk sjást merki um það. Lestrarskimanir sem lagðar eru fyrir alla nemendur í 2. bekk í grunnskólum Reykjavíkur sýna að nú, árið 2015, geta 64% nemenda lesið sér til gagns (ná að minnsta kosti 65% árangri á prófinu) og er það næstlægsta hlutfall frá og með árinu 2006. Hvað er hægt að gera til að sporna við þessari þróun? Hlutverk hverra er það að snúa þessari þróun við? Eitt er að geta lesið sér til gagns og annað er að taka sér bók í hönd og lesa sér til gamans.
Áhugi á lestri
Lestraráhugahvöt er viljinn til að takast á við lestrarnámið þar sem hvatinn til að læra að lesa drífur einstaklinginn áfram. Nemandi með lestraráhugahvöt er tilbúinn til að tileinka sér námið, þ.e. hann er áhugasamur, athugull, forvitinn og tilbúinn að taka þátt. Mikilvægt er að hafa næga lestraráhugahvöt til að lestrarnámið verði jákvætt fyrir barnið og þannig verða framfarir meiri. Lestraráhugahvöt má örva og virkja með áhugaverðu og skemmtilegu lesefni. Lesefni sem vekur ekki áhuga eða er of erfitt getur dregið úr áhuga. Rannsóknir sýna að nemanda með mikla innri áhugahvöt í lestri gengur betur í lesskilningi en nemanda með litla innri áhugahvöt og góður lesskilningur er forsenda þess að ganga vel í námi. Áhugahvöt barna spáir fyrir um magn og breidd lesefnis þeirra.
Hlutverk kennara er að hjálpa nemendum að efla og viðhalda áhugahvöt í lestri. Með markvissu inngripi er hægt að stuðla að miklum lestraráhuga á meðal nemenda. Samvinna í lestrarnámi er mjög mikilvæg og ýtir undir innri áhugahvöt; nemendur geta lesið hver fyrir annan, rætt innihald texta og kynnt lesefni sitt fyrir bekkjarfélögum. Nemendum sem setja sér markmið um félagslega ábyrgð í náminu, eins og að vinna með öðrum og hugsa út í hvernig hegðun þeirra hefur áhrif á aðra, vegnar betur í náminu en þeim sem setja sér ekki markmið. Þá geta félagslegar athafnir eins og spil og leikir aukið lestrargetu barna í gegnum leik. Kennarinn þarf að huga að vali á lesefni, en efnið þarf að vera fjölbreytt og við hæfi hvers og eins. Takist að efla lestraráhugahvöt nemenda og fá þá til að lesa sér til gagns og gamans leiðir það til viðvarandi áhugahvatar og framfara í lestri. Stuðningur foreldra og vina er einnig mikilvægur.
Með því að bjóða upp á fjölbreytt úrval af lesefni er komið til móts við ólík áhugasvið nemenda. Kennari þarf að huga að þyngd textans, stærð leturs, lengd bóka og bókakafla, myndum í bókum og því að fjölbreytni sé í umfjöllunarefnum og textategundum. Bjóða þarf upp á sögur, ljóð, ævintýri, fræðitexta, uppflettirit og fleira. Kennarinn getur gert áhugakannanir á meðal nemenda og notað niðurstöðurnar við að ákvarða hvaða lesefni hann býður upp á og þannig aukið áhuga nemenda sinna á lestri. Samvinnuverkefni nemenda, eins og að lesa hver fyrir annan, ræða innihald, spá fyrir um framhaldið og kynna lesefni fyrir samnemendum, kveikja og viðhalda áhuga á lestri og ættu að standa nemendum á öllum aldri til boða.
Fjölbreytt lesefni
Börn eru líklegri til að skilja og tileinka sér texta sem þeim finnst áhugaverður og áhugaverðastur er texti sem er um kunnuglegt efni, höfðar til þeirra og þeim tekst að tengja eigin reynslu. Kennari þarf því að þekkja nemendur sína vel til að skilja hvaða lesefni er líklegt til að vekja áhuga þeirra.
Góðar og vandaðar lestrarbækur geta ýtt undir aukinn lestur, lesskilning og orðaforða. Lesefni getur verið af ýmsum toga, og það sem einum finnst áhugavert er ekki endilega jafn spennandi fyrir annan. Fræðibækur og uppflettirit geta höfðað til einhverra en aðrir vilja helst lesa spennandi ævintýrasögur eða vísindaskáldskap. Enn aðrir vilja lesa ljóð eða myndasögur.
Á vefnum nams.is má finna lista yfir bækur sem flokkast sem lestrarkennsluefni. Á listanum er að finna 131 bók sem eru flokkaðar í fimm þyngdarflokka. Tekið er fram að útgáfu einhverra þessara bóka hefur verið hætt en eintök af þeim eru þó til víða í skólum. Auk þessara fimm flokka eru 17 bækur á svipuðu þyngdarstigi og bækur í fimmta þyngdarflokki, en þeim fylgja að auki hljóðbækur. Skýrt er tekið fram að myndir styðji vel við efni bóka í fyrstu fjórum þyngdarflokkunum til að auðvelda skilning. Á hverju ári bætast nokkrar bækur inn í þessa þyngdarflokka. Flokkarnir fimm varpa skýru ljósi á gerð texta og efni sem breytist og þyngist. Þessi sömu einkenni sjást í lestrarkennsluefni, hvort sem það kemur fyrir í einni og sömu bókinni eða bókaflokki. Nemendur eru misfljótir að tileinka sér lestrartækni. Sumir þurfa ekki að lesa allar bækurnar en öðrum nægir ekki að lesa þessar bækur til að taka eðlilegum framförum. Þá þurfa nemendur að lesa sumar eða jafnvel allar bækurnar aftur. Eins og áður kom fram er val um lesefni eitt af því sem ýtir undir lestraráhugahvöt og framfarir í lestri. Því er nauðsynlegt að úrvalið af lesefni sé nóg í hverjum þyngdarflokki til að allir geti haft val um lestrarbækur. Úrvalið þarf einnig að vera fjölbreytt og höfða til áhuga hvers og eins.
Í dag eru miðlar sem ung börn meðhöndla af mörgum og misjöfnum toga og kenna þarf þeim að verða læs á þessa margvíslegu miðla og þá þýðir ekki að kenna eingöngu ritmál. Miðlalæsi eða nýlæsi er sú færni að geta lesið og skrifað með því að velja á milli mismunandi táknkerfa og miðla. Myndasögur eru dæmi um táknkerfi sem lesa þarf með víðtækari þekkingu en einungis á ritmálinu.
Myndasögur sem valkostur í lestrarnámi
Myndasögur eru form texta og mynda sem notað hefur verið til að tjá tungumálið síðan í Egyptalandi til forna. Myndasögur hafa síðan náð miklum vinsældum um allan heim hjá lesendum á öllum aldri. Lestur myndasagna er eitt af þremur atriðum sem nemendur nefna í viðhorfakönnun í 2. bekk sem ánægjulegustu lestrarupplifunina. Ályktunarhæfni er ein af undirstöðum lesturs og hefur hún áhrif á lesskilning. Myndasögur reyna mikið á ályktunarhæfni lesenda, margt er að gerast á myndunum og jafnvel á milli myndanna sem hvorki kemur beint fram á myndunum né í textanum. Lesandinn þarf þá að beita ályktunarhæfni til að geta sér til um hvað gerðist í efninu. Myndasögur kalla á annan og virkari lestur en lestur hefðbundins texta. Lesandinn þarf að beita flóknari tækni en hefðbundinni umskráningu og lesskilningi. Myndirnar gegna mikilvægu hlutverki og „lestur“ þeirra tekur til læsis í víðum skilningi. Þannig getur góð myndasaga gert lesandanum kleift að „heyra“ sögu sem ekki er sögð með texta.
Rannsóknir sýna að nemendur tileinka sér innihald myndasagna betur en hefðbundins texta og hafa meiri ánægju af lestrinum. Auk þess gefa myndasögur nemendum með takmarkaða lestrargetu færi á lestrarupplifun sem veitir þeim mikla ánægju. Með lestri myndasagna gefst kostur á að æfa lesskilning og ályktunarhæfni, auk þess sem lestur myndasagna ýtir undir aukið ímyndunarafl, eykur ánægju og áhugahvöt og stuðlar að auknum lesskilningi.
Vitað er að margir einstaklingar, og skiptir þá ekki máli hvort um börn eða fullorðna er að ræða, læra betur það efni sem sett er fram myndrænt. Þungt lesefni eins og Íslendingasögurnar hefur verið fært í myndasögubúning fyrir nemendur á mið- og unglingastigi. Meira efni er hægt að finna í myndasögum á íslensku. Þótt ekkert sé til af lestrarkennsluefni á myndasöguforminu fyrir yngstu nemendurna sækja þeir í það efni sem til er þótt lesmálið sé of erfitt fyrir þá. Nemendur geta skoðað myndirnar og dregið ályktanir um atburðarás út frá þeim þó þeir ráði ekki við að lesa þungan texta. Þannig æfist lesskilningur og ályktunarhæfni. Sem kennari á yngsta stigi verð ég mikið vör við vinsældir Andrésblaða og Syrpu. Myndasögur sem gagngert eru til að þjálfa lestur yngstu barnanna eru hins vegar af skornum skammti. Kennarar þurfa að gera sér grein fyrir möguleikum myndasagna í því margvíslega læsisumhverfi sem börn alast upp í, m.a. vegna sérstöðu myndasagna hvað varðar þátttöku lesandans í framvindu sögunnar. Sú ákveðna óvissa sem sköpuð er milli ramma í myndasögu gefur lesandanum frelsi til að geta sér til um söguþráðinn.
Í nútímaþjóðfélagi skiptir víðlæsi miklu máli og lestur bóka er mikilvægur, enda eitt algengasta form lesturs. Úr bókum kemur bættur orðaforði og aukinn lesskilningur. Þorri nemenda lærir að lesa í skóla með hjálp bóka og mikilvægt er að allir verði læsir. Aðgengileg og áhrifarík leið til að ná því markmiði er að höfða til áhuga hvers og eins. Lestraráhuga þarf að vekja og viðhalda hjá nemendum með því að halda að þeim áhugaverðu lesefni og geta myndasögur verið ein gerðin. Hafi einstaklingur áhuga á myndasögum ætti að nýta þann áhuga markvisst til að kenna einstaklingnum að lesa. Breitt úrval af lesefni eykur líkur á að nemendur finni viðfangsefni við hæfi. Þá getur vaknað sú von að áhugi byrjandans í lestri kvikni og að lestraráhugi verði það mikill að hann efli lestrargetuna og viðhaldi henni áfram. Til að sporna við minnkandi lestri getum við kennarar hugað að fjölbreyttu úrvali lesefnis fyrir nemendur okkar og bókaútgefendur að útgáfu fjölbreytts lesefnis, til dæmis myndasagna.