Fjölbreytileikinn í fyrirrúmi á Menningarmóti
Nemendur í Landakotsskóla efndu til Menningarmóts í Borgarbókasafninu á alþjóðlegum degi menningarlegrar fjölbreytni 21. maí síðastliðinn. Sama dag var tilkynnt að Landakotsskóli væri formlega orðinn Menningarmótsskóli og einnig leikskólarnir Laugasól, Rofaborg, Hólaborg og Árborg og Ingunnarskóli og Háteigsskóli.
Menningarmót hafa verið haldin í 25 skólum í Reykjavík síðustu árin og áhuginn vex jafnt og þétt. Verkefnið, sem er einnig þekkt undir nafninu „Fljúgandi teppi“, gengur í stuttu máli út á að varpa ljósi á styrkleika þeirra sem taka þátt og fjölbreytta menningarheima þeirra. Markmiðið er meðal annars að þátttakendur geri sér ljóst að fjölbreytt menning, áhugasvið og ólík tungumál mynda mikilvægt menningarlegt litróf í samfélaginu og að nemendur, foreldrar og skólafólk komi saman í skapandi umhverfi og kynnist menningu og áhugamálum hvers annars.
Kristín R. Vilhjálmsdóttir, verkefnastjóri Fjölmenningar í Borgarbókasafninu, er höfundur menningarmótsins og hefur haft veg og vanda af verkefninu frá upphafi – en frá árinu 2008 hafa verið haldin um 80 menningarmót í leik-, grunn- og framhaldsskólum í Reykjavík.
Háteigsskóli telst fyrsti formlegi „Menningarmótsskóli“ í Reykjavík en menningarmót hafa verið haldin í skólanum í sjö ár og sú hefð verið fest í sessi að halda alltaf Menningarmót í 5. bekk. Í Ingunnarskóla hafa veiið haldin Menningarmót í öllum bekkjum skólans og ákveðið hefur verið að halda Menningarmót foreldra barna í öðrum bekk næsta vetur – í þeim tilgangi að efla og styrkja tengsl foreldra yngri barna. Meðal annarra skóla sem hafa haldið Menningarmót má nefna Ölduselsskóla, Fellaskóla, Austurbæjarskóla og Melaskóla. Menningarmótsverkefnið er afar fjölbreytt og hægt að sníða og útfæra það á ótal vegu.
Falleg samskipti barna og fullorðinna
Upphaf þess að Kristín fékk áhuga á menningarmótum má rekja til Danmerkur þar sem hún starfaði sem grunnskólakennari um árabil. „Ég fékk
Menningarmót felur í sér að þátttakendur fjalla um hvað þeim finnst áhugavert og skemmtilegt. Á þessu borði mjá sjá fimleika- og balletfatnað eins þátttakandans auk bókanna um Harry Potter, en þær var einnig að finna á fleiri borðum.
áhuga á því sem kallast fjölmenningarfærni þegar ég var kennari í Silkeborg í Danmörku. Á þessum tíma kenndi ég tungumál og skapandi greinar auk þess að vera umsjónarkennari. Það voru fáir nemendur af erlendum uppruna í skólanum mínum og mér fannst skorta á margbreytileika. Virk fjölmenningarfærni í kennslu var takmark sem ég vildi ná. Ég setti mig því í samband við tungumálaskóla í borginni og svo fór að við fengum nemendur þaðan til að heimsækja grunnskólabörnin. Úr þessu varð menningarmót en það felur þó alls ekki í sér að fólk sé bara að segja frá sínu heimalandi – menningarmót felur í sér að þátttakendur segja frá því sem skiptir þá sjálfa mestu máli. Þeir geta auðvitað sagt frá sínum heimahögum en líka talað um eitthvað allt annað og óskylt,“ segir Kristín.
Hún segir heimsókn fullorðinna tungumálanema í grunnskólann hafa heppnast afar vel. „Við sáum afskaplega falleg samskipti barna og fullorðinna. Fólkið í tungumálaskólanum talaði um það lengi á eftir hversu ánægjulegt það hefði verið að hitta börnin og þetta varð til þess að ég hóf að efna árlega til menningarmóts í skólanum í Silkeborg.“
Víkur þá sögunni hingað til lands en í byrjun árs 2008 ákvað Kristín að venda sínu kvæði í kross, yfirgefa Silkeborg og flytja til Íslands. „Mér hefur alltaf þótt vænt um kennarastarfið en þegar ég flutti hingað heim þá vissi ég ekki alveg hvað ég vildi. Mig langaði, eins og svo marga kennara eftir tíu ára starf, að prófa eitthvað nýtt. Ég gaf mér tíma til þess að fara yfir það sem hafði vakið mestan áhuga minn í kennarastarfinu ytra og komst fljótt að því að menningarmótsverkefnið stóð upp úr. Ég settist því niður og bjó til hugmyndina „fljúgandi teppi“, setti verkefninu markmið og skrifaði framkvæmdaáætlun. Ég var síðan ráðin verkefnastjóri fjölmenningar í Borgarbókasafninu og þá fór boltinn að rúlla,“ segir Kristín.
Fjölmenning í víðum skilningi
Menningarmótsverkefnið „Fljúgandi teppi“ hefur nú flogið á milli skóla í sjö ár og er orðið hefðbundinn hluti starfsins í mörgum skólum.
Nemendur 6. bekkjar í Landakotsskóla settu upp skemmtileg kynningarborð á Menningarmótinu þar sem þau kynntu helstu hugðarefni og áhugamál fyrir gestum.
Meginmarkmið þess er að sögn Kristínar að varpa ljósi á styrkleika þátttakenda og fjölbreytta menningarheima þeirra. Aðferðin er þverfagleg og felur í sér samstarf barna og fullorðinna. Hún segir að menningarmót megi útfæra í mörgum námsgreinum og námssviðum. „Menningarmótin tengjast oft vinnu með sjálfsmynd barna í leikskólum, samfélagsfræði, íslensku, tónlistar- og leiklistarkennslu í grunnskólum og lífsleikni í grunn- og framhaldsskólum og íslensku sem öðru tungumáli á fullorðinsstiginu.“
Kristín segir menningarmótin hugsuð sem tækifæri fyrir nemendur til að hittast og kynna sína persónulegu menningu í hvetjandi umhverfi. „Það er ekki endilega rætt um þjóðmenningu eða menningu upprunalands ef svo ber undir heldur er markmiðið að hver og einn varpi ljósi á það sem honum finnst mestu máli skipta og hvað vekur áhuga hans. Menningarmót eru ekki ekki landakynning heldur er lykilatriði að litið sé á hugtakið fjölmenningu í víðum skilningi; eitthvað sem varðar alla í samfélaginu en ekki einungis ákveðna hópa.“
Vefsíðan menningarmot.is var formlega opnuð í Borgarbókasafninu 26. febrúar síðastliðinn og geta áhugasamir fundið þar ýmsan fróðleik og fréttir um verkefnið. Kristín segir mikla vinnu hafa verið lagða í gerð vefsins en með tilkomu hans sé auðveldara fyrir skólafólk og aðra að nálgast upplýsingar um menningarmótin.
„Við gerðum okkar besta til að setja upplýsingarnar fram með aðgengilegum hætti og vonum að fólki reynist auðvelt að finna þær upplýsingar sem það leitar að,“ segir Kristín. Vefsíðuna vann hún í samstarfi við Skóla- og frístundasvið, Fríðu B. Jónsdóttur, verkefnisstjóra fjölmenningar, og Helgu Ágústsdóttur, kennsluráðgjafa hjá Reykjavíkurborg.
Á vefnum er hægt að lesa sér til um gildi og markmið menningarmótanna og finna leiðbeiningar um hvernig best sé að haga undirbúningi og skipulagi verkefnsins og hvernig hægt sé að koma því í framkvæmd. Hægt er að hafa samband við Kristínu vegna kynningar á verkefninu.
Markmið Menningarmóta
- Að varpa ljósi á styrkleika þátttakenda og fjölbreytta menningarheima þeirra.
- Að skapa hvetjandi umhverfi, þar sem nemendur, foreldrar og starfsfólk hittast og kynnast menningu og áhugamálum hvers annars.
- Að stuðla að gagnkvæmri virðingu og skilningi.
- Að skapa vettvang þar sem þátttakendur geta undrast og hrifist af því, sem er líkt og ólíkt í menningu þeirra og áhugamálum.
- Að allir mætist í tónlist, dansi, myndlist, bókmenntum, kvikmyndum, matargerð, ævintýrum og goðsögnum, frásagnarlist, leiklist, leik og hreyfingu.
- Að nemendur veiti öðrum hlutdeild í því stolti og þeirri gleði sem fylgir því að miðla eigin menningu og áhugamálum á skapandi hátt.
- Að einstaklingar verði meðvitaðir um gildi eigin menningar og upplifi um leið þau jákvæðu áhrif sem það hefur á sjálfsmyndina að veita öðrum innsýn inn í sinn heim.
- Að þátttakendur geri sér ljóst að fjölbreytt menning, áhugasvið og ólík tungumál mynda mikilvægt menningarlegt litróf í samfélaginu.