Fjölbreytileikinn endurspeglist í skólanum

„Ég held að það sé mikilvægt að við séum með fjölbreytileikann inni í kennarastéttinni líka, þannig að börnin okkar kynnist því að það geta allir kennt“, sagði Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga í Kennaravarpinu.
Heiða Björg ræddi við Magnús Þór Jónsson, formann Kennarasambands Íslands, um vinnuskilyrði kennara og jafnrétti og fjölbreytileika í kennarastéttinni, í tilefni af Kennaraviku Evrópsku kennarasamtakanna, ETUCE, sem lýkur í dag.
Uppleggið í Kennaravikunni eru tíu punktar sem samtökin lögðu fram og er ætlað að kveikja umræður um hvað skiptir mestu máli þegar kemur að því að styðja og styrkja kennara í starfi, gæta að starfsumhverfi þeirra og gera við kennarastarfið meira aðlaðandi.
Hér er hægt að lesa meira um tíu lykilpunkta ETUCE.
Sparnaður ekki rétta lausnin
Í umræðum um vinnuaðstæður kennara barst talið að stöðunni á skólahúsnæði í höfuðborginni og um land allt. „Þetta er náttúrulega ein af birtingarmyndum þess að sveitarfélögin eru vanfjármögnuð og þau spara alls staðar þar sem hægt er að spara. Þau hafa sparað mjög mikið í viðhaldi, og það er bara að koma okkur algjörlega í koll núna,“ sagði Heiða Björg og benti á að hugsanlega hafi ekki verið jafn mikil vitneskja um áhrif á heilsu af því að vera ekki í góðu húsnæði, hvað þá mygluðu húsnæði, á þeim tíma sem þær ákvarðanir voru teknar.
En í dag sé staðan önnur: „Nú bara vitum við það, að þetta er í raun ekki leið til þess að spara. Ég held að það sé mikilvægt að sveitarfélögin standi sterkar þannig að þau geti búið betur að þessari mikilvægu stétt og þessum mikilvægu stofnunum sem skólarnir eru.“
Mikilvægt að nemendur geti speglað sig í kennurum
Hvað jafnréttismálin varðar sagði Heiða Björg: „Ég held að það sé orðinn dýpri skilningur á því að við erum allskonar, miklu meira en bara karl og kona. Við erum líka með mismunandi uppruna, mismunandi húðlit, og við getum verið fötluð og ekki fötluð, og við þurfum einhvern veginn líka að búa til starfsumhverfi þannig að við fáum þennan fjölbreytileika inn í grunnskólann. Líka þannig að börnin, sem eru allskonar, rétt eins og við öll í samfélaginu, geti speglað sig í sínum kennurum.“
Samfélagið okkar er að breytast, samfélagsleg samsetning samfélagsins er að breytast og það þarf svolítið að endurspeglast allsstaðar
Þá segir Heiða niðurstöður árlegra kannanna Rannsóknar og greiningar, þar sem líkamleg og andleg líðan barna og unglinga er skoðuð ásamt þáttum á borð við áfengis- og vímuefnaneyslu og árangur í námi, sýna að einn af mikilvægu þáttunum sé hvort nemandi upplifi að kennaranum hans líki við sig. „Og maður hugsar oft bara: Þvílíkur máttur sem þið hafið, að bara ef þið hefðuð tækifærið og tímann til þess að láta öllum börnunum líða þannig að þau séu bara „okay“ eins og þau eru, þá bara eru minni líkur á að þau lendi í vanda.“
Hægt er að horfa á viðtalið við Heiðu í heild hér: