Fjögur verkefni styrkt um rúmar 72 milljónir

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur úthlutað styrkjum úr Menntarannsóknasjóði 2021.
Alls bárust 23 gildar umsóknir í Menntarannsóknasjóð, fjórtán voru um rannsóknaverkefni og níu umsóknir frá doktorsnemum. Niðurstaða ráðherra var að styrkja tvær umsóknir í hvorum flokki; annars vegar rannsóknaverkefni og hins vegar doktorsverkefni. Heildarstyrkupphæð er 72.547.500,- krónur.
Verkefnisstyrkir
Verkefnin eru bæði til tveggja ára. Tekur það fyrra til áherslunnar um nám og kennslu nemenda með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn; hið síðara leggur áherslu á skólaforðun og brotthvarf úr námi.
Verkefnisstjóri
Aðsetur verkefnis
Heiti verkefnis
Upphæð
Kathryn Margaret Crowe
Háskóli Íslands
Orðaheimurinn á Íslandi
23.707.500,-
Kristjana Stella Blöndal
Háskóli Íslands
Margbreytileiki brotthvarfsnemenda: Raddir nemenda
24.850.000,-
Doktorsnemastyrkir
Fyrra verkefnið er til eins árs en hið síðara til tveggja ára. Bæði leggja þau áherslu á skólaforðun og brotthvarf úr námi.
Doktorsnemi
Aðsetur verkefnis
Heiti verkefnis
Upphæð
Heiður Hrund Jónsdóttir
Háskóli Íslands
Sjálfsmynd og skólaviðhorf nemenda í tengslum við skuldbindingu þeirra og brotthvarf frá námi: Langtímarannsókn á meðal framhaldsskólanema
7.995.000,-
María Jónsdóttir
Háskóli Íslands
Stytting námstíma stúdentsprófsbrauta: Áhrif á inntak bóklegs náms á framhaldsskólastigi og áframhaldandi nám á háskólastigi
15.995.000,-
Menntarannsóknasjóður styður hagnýtar menntarannsóknir á sviði leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla, náms á framhaldsskólastigi og frístundastarfs.
Árið 2021 voru þessar rannsóknaáherslur í brennidepli
- Nám og kennsla nemenda með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn.
- Skólaforðun og brotthvarf úr námi.
- Nám og kennsla í náttúrugreinum, raungreinum eða tæknigreinum.