Fjögur verkefni hljóta styrk úr Rannsóknasjóði KÍ

Fréttir|22. júní 2023

Nýliðar, móttaka og stuðningur í starfi, líðan hinsegin nemenda og þróun kennsluhátta og gæði í kennslu voru áherslusvið sjóðsins þetta árið.

Stjórn Rannsóknasjóðs KÍ hefur gert kunnugt um hvaða félagsmenn fá styrk til rannsókna þetta árið. Þetta er í fimmta skipti sem sjóðurinn styrkir rannsóknaverkefni.

Umsóknir þetta árið voru töluvert færri en undangengin ár, eða þrettán talsins. Ákveðið var að fjögur verkefni fengju styrk að þessu sinni; að heildarupphæð 3.250.000 krónur.

Eftirtalin verkefni hlutu styrk

Upplifun nemenda af námi í kvöldskóla VMA

  • Jóhann Hjaltdal Þorsteinsson og Helgi Valur Harðarson
  • Verkmenntaskólinn á Akureyri
  • Styrkupphæð: 500.000,- kr.

Hvað eru verðug verkefni fyrir nemendur í framhaldsskóla?

  • Sigrún Lilja Guðbjörnsdóttir og Ólafur Þórisson
  • Menntaskólinn við Sund
  • Styrkupphæð: 1.000.000,- kr.

Þróun kennsluhátta í Reykholtsskóla í kjölfar spjaldtölvunotkunar í skólastarfi

  • Ásta Kristjana Guðjónsdóttir
  • Reykholtsskóli í Bláskógabyggð
  • Styrkupphæð: 600.000.- kr.

Könnun á hvernig fordómar birtast í garð hinsegin nemenda

  • Jónína Klara Pétursdóttir og Maríanna Jónsdóttir Maríudóttir
  • Urriðaholtsskóli í Garðabæ
  • Styrkupphæð: 1.150.000,- kr.