Fjögur í framboði til formanns KÍ
Fréttir|5. október 2021

Formannskosningar eru fram undan hjá KÍ. Frestur til að bjóða sig fram rann út á miðnætti.
Framboð til formanns Kennarasambandsins liggja fyrir. Fjögur gefa kost á sér í embættið.
Frambjóðendur eru í stafrófsröð
- Anna María Gunnarsdóttir, varaformaður Kennarasambands Íslands
- Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, kennari í Borgarholtsskóla
- Heimir Eyvindsson, dönskukennari og deildarstjóri í Grunnskólanum í Hveragerði
- Magnús Þór Jónsson, skólastjóri í Seljaskóla.
Félagsmenn KÍ greiða atkvæði í rafrænni kosningu dagana 2. til 8. nóvember næstkomandi.
Formannsskipti fara fram á VIII þingi KÍ sem haldið verður í apríl á næsta ári.