Fjarnám við tónlistardeild LHÍ

Námið er eins og er ætlað starfandi tónlistarskólakennurum með reynslu af vettvangi.
Tónlistardeild Listaháskóla Íslands býður nú upp á fjarnámskeið fyrir starfandi tónlistarskólakennara á vettvangi Opna Listaháskólans.
Fyrsta námskeiðið, Almenn kennslufræði tónlistar, var kennt í fyrsta skipti á vorönn 2020 og nú í haust er boðið upp á fjarnámskeið í Sálfræði.
Ný námskeið 2021
Fyrirhugað er að bjóða tvö til þrjú ný námskeið til viðbótar á vorönn 2021 auk þess sem kennslufræðin verður kennd aftur.
„Hugmyndin að baki námsframboðinu er að starfandi tónlistarkennarar geti tekið einingabært nám á sviði kennslufræða til að styrkja réttindastöðu sína á starfsvettvangi eða sem áhugaverðan valkost til starfsþróunar. Sömuleiðis er Listaháskólinn að þróa möguleika á raunfærnimati og er stefnt að því að tónlistardeild bjóði upp á slíkt mat fyrir kennara og stjórnendur tónlistarskólanna 2021,“ segir Elín Anna Ísaksdóttir, fagstjóri tónlistardeildar Listaháskóla Íslands.
Hvatinn að þróun fjarnámsins var rannsóknarvinna sem lagt var í fyrir tilstilli mennta- og menningarmálaráðuneytisins, en verkefnið var unnið 2018-2019.
Mikilvægt innlegg í umræðu og vinnu
„Strax í upphafi lögðum við áherslu á að ná til starfsfólks tónlistarskólanna vítt og breitt um landið til að fá sem raunhæfasta og skýrasta mynd af viðhorfum og þörfum. Fljótlega varð ljóst að verkefnið væri mikilvægt innlegg í umræðu og vinnu við stefnumótun á sviði kennaramenntunar, þróunar nýrra námsleiða, uppbyggingu fjarnáms og þróunar raunfærnimats. Við settum kennaramenntun og mikilvægi hennar í brennidepil,“ segir Elín Anna.
„Niðurstöðurnar leiddu ótvírætt í ljós mikla þörf á námsframboði í fjarkennslu og að hægt væri að stunda námið samhliða vinnu,“ segir Elín Anna og bætir við að þegar spurt hafi verið um inntak námskeiða hafi fög eins og kennslufræði og sálfræði oftast verið nefnd, auk hagnýtra faga eins og útsetningar og námskeiða í tengslum við tækni og skapandi vinnu.
Í ljósi ótvíræðra niðurstaðna um mikilvægi aukins námsframboðs í fjarnámi var ákveðið að hefjast handa sem fyrst við þróun þess og fyrsta námskeiðinu hrundið af stað í janúar 2020.
Elín Anna útskýrir að námskeiðin séu annað hvort kennd alfarið í fjarnámi eða sem fjarnámskeið með staðlotum. Reiknað er með að á vorönn 2021 verði tilbúinn námskeiðskjarni sem hægt verði að byggja við smátt og smátt.
Strax mikil viðbrögð
Námið er eins og er ætlað starfandi tónlistarskólakennurum með reynslu af vettvangi.
„Eins og komið hefur fram var fyrsta námskeiðið kennt á síðustu vorönn. Við renndum nokkuð blint í sjóinn og námskeiðið var kynnt með stuttum fyrirvara en það urðu þó strax mikil viðbrögð og margar fyrirspurnir sem bárust. Nemendur sem sóttu námskeiðið voru þrettán talsins, flestir með langa og mikla reynslu af kennsluvettvangi. Þetta var frábær hópur og það skapaðist strax mjög góður andi,“ segir Elín Anna.
„Við lögðum upp með að vinnuálag væri viðráðanlegt með kennslu og að verkefnin tengdust starfsvettvangi á einhvern hátt og er það útgangspunkturinn við öll námskeiðin. Vonir okkar standa til þess að námsframboð af þessum toga haldi áfram að þróast jafnt og þétt við Listaháskólann,“ segir Elín Anna að lokum.

Elín Anna Ísaksdóttir, fagstjóri tónlistardeildar Listaháskóla Íslands.
Umsagnir nemenda um námskeiðið
- Námskeiðið stóðst svo sannarlega væntingar, því þær upplýsingar sem ég fékk í gegnum námskeiðið voru margfalt meiri en ég bjóst við.
- Inntak, lesefni og umfjöllunarefni námskeiðsins var mjög vel valið og finnst mér ég nú hafa upplýsingabanka sem ég get leitað í og lært af langt fyrir utan þennan stutta tíma sem námskeiðið varði. Námskeiðið var heilt yfir nokkuð gott, og ég er ánægður að ég tók þátt. Það hefur aukið fagmennsku mína í starfi og gefið mér verkfæri sem ég mun nota áfram.
- Þegar á allt er litið þá er ég mjög hrifinn af því sem ég hef lært. Þetta námskeið er dúndrandi fínt og hefur hreyft við mér á margvíslegan hátt.
- Lestrarefnið var allt saman viðeigandi og nauðsynlegur partur af kennslunni, glærur og fyrirlestrar skýrt framsett og í hæfilegum skömmtum.
- Ég bara sá að þetta væri akkúrat það sem ég þyrfti að nýta mér þar sem ég hef ekki þessi eiginlegu kennsluréttindi. Var svolítið hikandi hvort ég gæti þetta og hefði nægan tíma. Sendi spurningu um hvort þetta væri nám fyrir „miðaldra“ sem ekki hefði verið í skóla í mörg ár. Fékk frábært svar [..] um að námskeiðið væri algjörlega fyrir „miðaldra“ og einmitt hugsað fyrir starfandi kennara sem hefðu ekki verið í skóla nýlega. Þetta svar varð til þess að ég velti þessu ekki meira fyrir mér og sló til, sé ekki eftir því.
- Þegar ég sá að boðið var upp á fjarnám í kennslufræði tónlistar við Listaháskólann fagnaði ég mjög því þetta er nokkuð sem beðið hefur verið eftir með mikilli óþreyju. Námskeiðslýsingin var mjög í anda þess sem mig hefur langað til að læra og skráði ég mig á námskeiðið án þess að hika.
Umfjöllun í Skólavörðunni sem lesa má á netinu.