Fjármálayfirvöld standi við gerða samninga
Kennarafélag Verkmenntaskóla Austurlands lýsir yfir þungum áhyggjum yfir þröngri fjárhagsstöðu íslenskra framhaldsskóla. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á fundi félagsins í gær. Þar segir ennfremur:
„Formaður Skólameistarafélags Íslands hefur sagt það nánast vonlaust að reka framhaldsskóla á Íslandi við núverandi aðstæður. Þeir skólar sem hafa haft í einhverja sjóði að sækja eru að tæma þá og nú fyrir stuttu sagði skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri skólann í raun gjaldþrota.
Í kjarasamningum vorið 2014 skrifuðu ráðherrar mennta- og fjármála undir yfirlýsingu um að styrkja fjárhagsgrunn framhaldsskólana og auka samræmi milli fjárveitinga og þeirra þjónustu sem skólarnir eiga að veita. Endurskoða átti reiknilíkan með áherslu á að grunnbreytur endurspegli launakostnað sem réttast á hverjum tíma, þeirri endurskoðun átti að vera lokið fyrir ári síðan. Samt sem áður er það þannig að launastika reiknilíkansins sem skammtar skólunum fjármagn sem þeim ber til þess að greiða kennurum laun endurspeglar á engan hátt launakostnað. Það hlýtur að vera eðlileg krafa að fjármálayfirvöld standi við gerða samninga.
Menntun er undirstaða velferðar í nútímasamfélagi því er það verulegt áhyggjuefni hvernig búið er að framhaldsskólum landsins. Brýnt er að grípa til aðgerða og leiðrétta stöðuna nú þegar enda sé í óefni komið. Staðan er í raun grafalvarleg og teljum við nauðsynlegt að grípa í taumana“.