Fjármálaráðherra sagt upp störfum

Fréttir|26. mars 2026
Brefid

vvvv

„Samkvæmt nýju fyrirkomulagi hefur áminningarskylda verið afnumin. Það þýðir að ekki er lengur gerð krafa um að veitt sé áminning eða gefið tækifæri til úrbóta áður en gripið er til uppsagnar."

Þetta kemur fram í heilsíðuauglýsingu sem Kennarasambandið, BSRB og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga birtir í Morgunblaðinu í dag. 

Birting bréfisins er liður í baráttuherferð stéttarfélaganna þriggja gegn áformum ríkisstjórnarinnar um að afnema áminningarskyldu meðal opinberra starfsmanna. Það er mat félaganna að afnám áminningarskyldu muni hafa í för með sér eina stærstu réttindaskerðingu sögunnar á íslenskum vinnumarkaði. 

„Með því afnema áminningarskyldu aukast verulega líkur á óréttlátum, ósanngjörnum og tilhæfulausum uppsögnum. Stjórnendur hjá ríkinu hafa nú þegar fulla heimild til að bregðast við ef starfsfólk er ekki að standa sig í vinnu. Að halda öðru fram er beinlínis rangt. Það er sanngjörn regla að fólki sé gefið tækifæri til að bæta úr áður en því er sagt upp. Verði áminningarskyldan afnumin verður enginn slíkur varaventill lengur," segir í grein formanna félaganna þriggja. 

Uppsagnarbréfið hefur vakið töluverða athygli og er fjallað um það í helstu fjölmiðlum. Svo vitnað sé aftur í bréfið þá segir þar að uppsögn ráðherra sé án aðvörunar. „Mistök í starfi eru því ekki lengur liðin. Enginn fær annan séns. Annað tækifæri er ekki í boði," segir í bréfinu. 

Félagsfólk er hvatt til að taka þátt í baráttunni gegn afnámi áminningarskyldu. Hægt er að kynna sér málið í þaula á vefnum Góð áminning.