Fjárfesting í starfsþróun í menntakerfinu

Fréttir|8. janúar 2021

Námskeiðin verða fyrir kennara í leik-, grunn-, tónlistar- og framhaldsskólum og stjórnendur og annað fagfólk innan skólasamfélagsins.

Ný starfsþróunarnámskeið verða í boði á næstunni fyrir kennara og annað fagfólk í menntakerfinu. Nú þegar standa yfir þrjú námskeið þar sem um 100 stærðfræðikennarar taka þátt. Námskeiðin verða fyrir kennara í leik-, grunn-, tónlistar- og framhaldsskólum og stjórnendur og annað fagfólk innan skólasamfélagsins. Þau verða í boði í fjarnámi og henta því þátttakendum um allt land.

Heildarframlag mennta- og menningarmálaráðuneytis til verkefnisins nemur 131 milljón kr. á tímabilinu 2020-2022.

Kennarasamband Íslands ásamt Menntavísindasviði Háskóla Íslands og Háskólanum á Akureyri skipuleggja námskeið á eftirtöldum sviðum:

• Læsi og íslensku
• Náttúrufræði og raungreinum
• Stærðfræði
• Forysta skólastjórnenda
• Þverfaglegum námskeiðum sem tengjast m.a. endurgjöf og námsmati, vellíðan, skólamenningu og þátttöku í skóla- og frístundastarfi margbreytileikans.

Á vef stjórnarráðsins kemur fram að grunnur námskeiðanna er niðurstöður rannsókna um stöðu nemenda í menntakerfinu. Námskeiðin byggja á hugmyndafræði lærdómssamfélagsins þar sem starfsþróun er samofin daglegu starfi kennara og þátttakendur læra markvisst hver af öðrum. Námskeiðin eru sett þannig upp að þau sé hægt að sækja og sinna með fullri vinnu.

„Námskeiðin eru mikilvægur liður í aðgerðum okkar til þess að auka sérhæfða þekkingu og hæfni meðal kennara og miðla skilvirkum aðferðum sem taka mið af fjölbreyttum nemendahópum. Í þessu tökum við mið af árangri annarra þjóða sem nýtt hafa áþekkar leiðir til þess að efla læsi, bæta orðaforða og hugtaka- og málskilning nemenda með markvissum hætti,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra á vef stjórnarráðsins.

Fjöldi námskeiða er í þróunarferli í nánu samstarfi við skólasamfélagið. Námskeiðin og fyrirkomulag þeirra verða kynnt nánar á næstu vikum.