Fjallaskóli Íslands gerir kjarasamning við KÍ

Fréttir|19. nóvember 2025

Félagsfólk KÍ, sem starfar í nýstofnuðum Fjallaskóla Íslands, hefur samþykkt kjarasamning. Unnið er að gera stofnanasamnings við skólann.

Kjarasamningur milli Fjallaskóla Íslands ses. og Kennarasambands Íslands var undirritaður 6. nóvember síðastliðinn. Félagsfólk KÍ, sem starfar í Fjallaskólanum, samþykkti samninginn í atkvæðagreiðslu sem fór fram dagana 12. til 14. nóvember. 

Fjallaskóli Íslands var stofnaður vorið 2025 og er rekinn sem óhagnaðardrifin sjálfseignarstofnun. Áður hafði Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu útskrifað nemendur úr fjallaleiðsögunámi en það lagðist af síðasta vor. 

„Skólinn býður uppá tvær námsbrautir á 4. hæfniþrepi framhaldsskóla og fær til þess stuðning frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu. Brautirnar nefnast Leiðsögumaður með áherslu á jöklaleiðsögn og Leiðsögumaður með áherslu á fjallgönguleiðsögn. Brautirnar miða að því að mennta verðandi jökla- og fjallgönguleiðsögumenn. Skólinn býður einnig uppá stök námskeið tengd fjallamennsku ætluð leiðsögumönnum og almenningi," segir á vefsíðu skólans. 

Nemendur í Fjallaskólanum eru nú 25 talsins. 

Þá er unnið að því að ljúka gerð stofnanasamnings við skólann í samráði við félagsfólk Félags framhaldsskólakennara. 

Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara, og Smári Stefánsson, skólastjóri Fjallaskólans, tókust í hendur að lokinni undirskrift samnings.