Finnst endalaust gaman að leiðbeina fólki

Skólavarðan ræddi við einn reynslumesta starfsmann Kennarasambandsins, Ástu Steinunni Eiríksdóttur, sem hefur starfað hjá sambandinu frá stofnun þess árið 2000. Ferill hennar er þó ívið lengri, því hún vann hjá Kennarasambandinu hinu eldra frá 1997 til 2000.
Ásta er því í hópi reynslumestu starfsmanna KÍ, en auk hennar eru þeir Hannes Þorsteinsson skrifstofustjóri og Þröstur Brynjarsson þjónustufulltrúi með lengstan starfsaldur. Þessi þrjú þekkja starfsemi KÍ frá A til Ö.
„Þetta er orðinn langur en ánægjulegur tími í starfi. Kennarasambandið er góður vinnustaður en vissulega hefur margt breyst frá stofnun, félagsmenn eru miklu fleiri og skrifstofan mun fjölmennari nú en í árdaga,“ segir Ásta.
Ásta hóf störf hjá Kennarasambandinu eftir að hafa unnið um langt árabil í bankageiranum, fyrst í Samvinnubankanum og síðar í Landsbankanum, þegar sá fyrrnefndi var lagður niður. „Árin í bankanum voru fínn undirbúningur fyrir starfið hér. Mér finnst gaman að vinna með tölur og viðhafa þá nákvæmni sem er nauðsynleg í slíkum störfum.“
Eftir níu ár í bankanum varð breyting á högum Ástu og fjölskyldan flutti til London og dvaldi þar í ár. „Þegar heim kom réði ég mig til starfa hjá Hagstofunni. Það var ansi merkilegt starf en ég vann við að fara heim til fólks og gera viðamikla neyslukönnun. Fólk hafði auðvitað samþykkt þátttöku fyrirfram og ég mætti með fornfálega tölvu sem gat bara gert eitt; en það var að fylla út könnunina. Svo voru niðurstöðurnar greindar og gerðar skýrslur um neysluhegðun þjóðarinnar,“ segir Ásta.

Góður andi á skrifstofunni sem endranær. Ásta er hér að ræða við þá Hannes Þorsteinsson skrifstofustjóra og Þröst Brynjarsson þjónustufulltrúa.
Byrjaði í félagatalinu
Henni var boðið framtíðarstarf á Hagstofunni en kveðst ekki hafa verið spennt fyrir því. Þá rakst hún á auglýsingu frá Kennarasambandinu og sótti um.
Það var í ágúst 1997 sem Ásta mætti á skrifstofu Kennarasambandsins eldra, í gamla Kennaraskólanum við Laufásveg. „Þetta var góð ákvörðun, ég fann það strax og ég hóf störf. Þarna í upphafinu hafði ég með höndum félagaskrána en ég var sett í að aðstoða Árna Þór Sigurðsson við það verkefni. Hann var kominn í pólitík og sat í borgarstjórn og á endanum var ég farin að sjá ein um félagaskrána. Tæknin var að ryðja sér til rúms en við þurftum að handslá inn allar upplýsingar um félagsmenn, greiðslur og annað í þeim dúr,“ segir Ásta.
Félagsmenn í gamla KÍ voru vel á fimmta þúsund þannig að það var nóg að gera. Síðla árs 1999 varð ljóst að sameining tveggja kennarasambanda, KÍ og HÍK, var að verða að veruleika. Kennarasambandið, eins og við þekkjum það í dag, var svo formlega stofnað 1. janúar 2000.
„Það var gott að sameina kennara í einu félagi og nýja Kennarasambandið var auðvitað mun stærra en það gamla. Vinnustaðurinn breyttist hins vegar ekki mikið, var áfram lítill og notalegur.“
Eitt af því sem starfsfólk KÍ býr við er að á fjögurra ára fresti geta orðið breytingar á forystusveit sambandsins. Ásta hefur unnið með fjórum formönnum og fjórum varaformönnum Kennarasambandsins, að ónefndu fólkinu sem hefur leitt aðildarfélögin síðustu tvo áratugina.
„Eiríkur Jónsson er sá formaður sem hefur setið lengst en heilt yfir er ekki hægt að segja annað en það hafi valist vel í embættin hjá KÍ. Það hefur verið mikið lán að kynnast öllu þessu góða fólki sem hefur stýrt félögum og setið í stjórnum, nefndum og ráðum á vegum sambandsins.“
Ásta hefur gegnt starfi gjaldkera sjóða frá stofnun KÍ. Eins og áður kom fram hafa tölur alltaf verið hennar ær og kýr. Ásta er líka vel þekkt meðal margra félagsmanna KÍ en síðustu árin hefur hún liðsinnt mörgum félagsmanninum sem hefur þurft góð ráð varðandi greiðslur og réttindamál tengd veikindum.
... það er auðvitað okkar keppikefli á degi hverjum; að veita félagsmönnum góða þjónustu á öllum sviðum
Mikilvægt að þekkja sinn rétt
Þolinmæði og skýrar leiðbeiningar Ástu þykja einstakar og hún skipar hóp þeirra starfsmanna KÍ sem eru í beinum tengslum við félagsmenn.
„Það kom mér kannski aðeins á óvart hvað ég hef gaman af því að leiðbeina fólki um réttindamálin. Ég hélt alltaf að félagsmenn vissu miklu meira um réttindi sín en raunin er. Það varð fljótlega að ástríðu hjá mér að upplýsa fólk með sem bestum hætti um hvaða réttur er til staðar og hvaða leiðir eru færar í máli viðkomandi,“ segir Ásta.
Hún segir brýnt að félagsmenn þekki rétt sinn og ekki síst lífeyrismálin. „Það er afar mikilvægt fyrir kennara sem aðra að kynna sér lífeyrismálin vel og vandlega, ekki síst þegar styttist í starfslok.“
Ásta á að baki fjöldamörg ár í gamla fallega Kennarahúsinu. Kennarasambandið flutti svo, eins og allir vita, í nútímalegt húsnæði við Borgartún 30 árið 2020.
„Það voru auðvitað viðbrigði að flytja af Laufásveginum, úr húsi sem okkur þótti vænt um. Ég hafði mína skrifstofu í gamla húsinu en hér í Borgartúninu eru engar einkaskrifstofur. Hér eru vinnusvæðin verkefnamiðuð og frjálst sætaval á hverjum degi. Ég var ekki ýkja spennt fyrir því, ég viðurkenni það, en reynslan hefur sýnt mér að þetta er gott vinnuumhverfi. Samskiptin við samstarfsfólk hafa aukist og þar með samvinna á ýmsum sviðum. Þetta finnst mér gleymast þegar rætt er um opin vinnurými. Ég er sannfærð um að þjónustan við félagsmenn hefur batnað eftir að við fluttum í Borgartúnið og það er auðvitað okkar keppikefli á degi hverjum; að veita félagsmönnum góða þjónustu á öllum sviðum,“ segir Ásta Steinunn Eiríksdóttir.
Greinin birtist í 1. tbl. Skólavörðunnar 2023.