Fimmtungur hafði greitt atkvæði á hádegi

Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum stendur yfir. Atkvæðagreiðslunni lýkur klukkan 14 á morgun.
Alls höfðu 20% greitt atkvæði um kjarasamning Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum á hádegi í dag. Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í Félagi kennara og stjórnenda í tónlistarskólum.
Atkvæðagreiðslan hófst á mánudag og stendur til klukkan 14 á morgun, fimmtudag.
Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum og Samband íslenskra sveitarfélaga skrifðu undir kjarasamning 11. janúar.Gildistími hins nýja samnings er 1. janúar 2022 til 31. mars 2023.
Um atkvæðagreiðsluna
Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is Kjósendur þurfa að skrá sig inn með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum. Þegar komið er inn á Mínar síður birtist kosningin.
- Smellið á tengilinn sem heitir Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FT 2022 og þá birtist atkvæðaseðillinn.
- Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.
- Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
- Skiptir þú um skoðun, geturðu kosið aftur. Með því að kjósa aftur ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.
- Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.
Talning auðra atkvæða
Með vísan til dóms Félagsdóms nr. 6/2020 teljast auð atkvæði með greiddum atkvæðum. Yfir 50% allra greiddra atkvæða þarf til að fella kjarasamning. Það felur í sér að auð atkvæði geta jafngilt atkvæðum sem samþykkja kjarasamning.