Fimm útskrifuðust með danskt stúdentspróf

Fyrsti árgangur Norður-Atlantshafsbekkjarins svokallaða var útskrifaður í Sisimiut á Grænlandi í gær.
Fyrsta brautskráning Norður-Atlantshafsbekkjarins fór fram í blíðskaparveðri í Sisimiut á Grænlandi í gær.
Norður-Atlantshafsbekkurinn (Nord-Atlantisk gymnasiumklasse), NGK, er nýjung fyrir ungmenni á Íslandi, Færeyjum, Grænlandi og í Danmörku, sem hafa áhuga á að mennta sig á Norður- Atlandsshafssvæðinu
Alls brautskráðust 22 nemendur með danskt stúdentspróf og þar á meðal voru fimm íslenskir nemendur, Björn Rafnar Ólafsson, Freydís Glóð Viborg, Markus Halfdan Haar, Svava Þóra Árnadóttir og Valtýr Elliði Einarsson.
„Þau hafa verið verðugir fulltrúar Íslands í þessu einstaka samvinnuverkefni fjögurra skóla í jafnmörgum löndum," segir á vef Verzlunarskólans en skólinn er aðili að þessu námi.
Fyrirkomulag námsins er þannig að nemendur dvelja fyrsta árið sitt í Gribskov í Danmörku. Annað námsárið skiptist í tvennt, annars vegar haustönn í Færeyjum og hins vegar í Verzló á vorönn. Lokanámsárið er svo á Grænlandi.
„Nemendur bekkjarins eru einstaklega samheldin hópur og hafa tekið út mikinn þroska á vegferð sinni. Námið gekk mjög vel hjá þeim og það voru stoltir nemendur sem tóku við skírteinum sínum við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu í Sisimiut að viðstöddum fjölskyldum sínum og fulltrúum Verzlunarskólans,“ segir jafnframt á vef Verzlunarskólans.
Einn NGK bekkur er á hverju námsári og munu því íslenskir NGK nemendur vera við nám í Danmörku, Færeyjum og Grænlandi næsta í haust.
Hægt er kynna sér námið betur hér.