Fimm kennarar verðlaunaðir fyrir framúrskarandi störf

Fréttir|4. júlí 2014

Menntavísindasvið Háskóla Íslands veitti í gær fimm grunn- og framhaldsskólakennurum verðlaun fyrir framúrskarandi störf. Verðlaunin eru afrakstur kynningarátaksins Hafðu áhrif sem Háskóli Íslands stóð fyrir í maí síðastliðnum.

Á heimasíðu átaksins Hafðu áhrif sögðu þjóðþekktir Íslendingar frá þeim kennara sem mest áhrif hafði haft á líf viðkomandi í stuttum myndböndum. Þá gafst almenningi kostur á að tilnefna þann kennara sem hafði haft mest áhrif á hvern og einn. Um tvö þúsund manns tóku þátt og hlutu á fimmta hundrað kennarar tilnefningu. Valnefnd fór yfir tilnefningarnar og umsagnir og í kjölfarið voru fimm kennarar valdir úr hópnum.

Kennararnir sem fengu verðlaun fyrir framúrskarandi störf eru:

  • Anna Steinunn Valdimarsdóttir, Laugalækjarskóla
  • Björk Þorgeirsdóttir, Kvennaskólanum í Reykjavík
  • Guðmundur Stefán Gíslason, Fjölbrautarskólanum í Garðabæ
  • Hrafnhildur Jóhannesdóttir, Keili
  • Hörður Ríkharðsson, Blönduskóla