Fimm bjóða sig fram til formanns FG
Fréttir|29. desember 2017

Rafræn atkvæðagreiðsla um nýjan formann FG fer fram dagana 17. til 22. janúar næstkomandi.
Fimm eru í framboði til formanns Félags grunnskólakennara. Frestur til að bjóða sig fram rann út á miðnætti í gær, 28. desember 2017. Rafræn atkvæðagreiðsla um nýjan formann FG fer fram dagana 17. til 22. janúar næstkomandi. Aðalfundur FG fer fram í Borgarnesi 17. og 18. maí 2018 og tekur ný stjórn félagsins þá formlega við.
Framjóðendur eru í stafrófsröð:
- Hjördís Albertsdóttir, umsjónarkennari í Reykjahlíðarskóla í Mývatnssveit.
- Kjartan Ólafsson, grunnskólakennari í Vatnsendaskóla í Reykjavík.
- Kristján Arnar Ingason, umsjónarkennari við Fellaskóla.
- Rósa Ingvarsdóttir, stærðfræðikennari í Rimaskóla.
- Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, grunnskólakennari í Árbæjarskóla.
Framjóðendurnir munu kynna sig og áherslur sínar á næstunni og verður kynningarefni meðal annars birt hér á vef á KÍ.
Um fyrirkomulag og kjör í önnur trúnaðarstörf FG.