FG vann mál um veikindarétt fyrir Félagsdómi

Fréttir|1. maí 2022

Félag grunnskólakennara hafði betur í máli gegn Sambandi íslenskra sveitarfélaga í máli er lýtur að 360 daga veikindarétti þeirra sem hafa verið starfandi í meira en 18 ár.

Starfsmaður skal halda launum svo lengi sem veikindadagar hans, taldi í almanaksdögum, verða ekki fleiri á hverjum 12 mánuðum en 360 dagar.“ Svo hljóðar skýring fjármálaráðuneytis frá árinu 2002 og hafa Félag grunnskólakennara, og önnur aðildarfélög KÍ, litið svo á að svona beri að túlka veikindarétt. Sveitarfélög hafa hins vegar viljað túlka þetta atriði með öðrum hætti og því ákváðu Kennarasamband Íslands og Félag grunnskólakennara að sækja mál fyrir Félagsdómi.

Málavextirnir

Grunnskólakennari á að baki lengri starfsferil en 18 ár og fellur því undir 360 daga regluna. Kennarinn var frá störfum frá 5. september til 15. október árið eftir. Lá þá fyrir vottorð um að kennarinn væri fullvinnufær. Þremur vikum síðar, eða 6. nóvember, veikist kennarinn á nýjan leik og hefur verið fjarverandi síðan. Vinnuveitandinn taldi að kennarinn hefði fullnýtt veikindarétt sinn.

Niðurstaða Félagsdóms er afdráttarlaus og þar segir að „ekkert sem heitir að endurnýja veikindarétt sinn“ sé að finna í veikindareglum ríkisins. Vísað er til greinar 13.2.2.1 í kjarasamningi FG þar sem segir að starfsmaður eigi rétt á launum á meðan á veikindum stendur í tiltekinn fjölda daga á hverju 12 mánaða tímabili. Ef horft er til máls grunnskólakennarans þá segir Félagsdómur að leggja verði til grundvallar að kennarinn hafi verið við störf á 20 almanaksdaga frá því fyrri veikindum lauk og þar til hann veiktist á nýjan leik. „Sé litið til síðustu 12 mánaða þar á undan hafi félagmaðurinn verið frá vinnu í um 345 daga og voru veikindadagar hans því ekki tæmdir,“ segir í dómnum.

Í stuttu máli þá fellst Félagsdómur á starfsmaður eigi rétt á launuðum veikindadögum hafi hann nýtt færri daga en 360 á síðustu tólf mánuðum. Þetta á við mál grunnskólakennarans sem er viðfang málsins og segir í dómsorðinu að hann eigi rétt til forfallalauna í veikindum sínum.

„Fyrir okkur sem berjumst fyrir réttindum kennara er þessi niðurstaða Félagsdóms gríðarlega gleðileg og ánægjuleg. Samband íslenskra sveitarfélag ákvað einhliða að hætta að fara eftir umræddu ákvæði kjarasamningsins og áratuga framkvæmd en þetta ákvæði varðar mjög mikilvæg réttindi kennara. Nú tekur við barátta að ná fram leiðréttingum tilhanda þeim kennurum sem sveitarfélögin brutu á," segir Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, formaður Félags grunnskólakennara.

Samband íslenskra sveitarfélaga var dæmt til að greiða 600 þúsund krónur í málskostnað. Gísli Guðni Hall hrl. flutti málið fyrir hönd Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara. 

Lesa dóm Félagsdóms