FG lýsir yfir stuðningi við baráttu tónlistarskólakennara

Fréttir|15. október 2014

Félag grunnskólakennara lýsir yfir fullum stuðningi við kjarabaráttu tónlistarskólakennara og stjórnenda tónlistarskóla. Þetta kemur fram í ályktun sem stjórn og samninganefnd FG hefur sent frá sér. Í ályktuninni segir meðal annars að engin rök séu fyrir því að tónlistarkennurum séu boðin lakari kjör en öðrum kennurum innan Kennarasambandsins. Þá sé með öllu óþolandi að enn eitt félagið innan KÍ þurfi að grípa til þvingandi aðgerða til að ná fram sanngjörnum kjarabótum. 

Ályktunin er svohljóðandi: 

„Stjórn og samninganefnd Félags grunnskólakennara lýsa yfir fullum stuðningi við kjarabaráttu tónlistarskólakennara og stjórnenda tónlistarskóla í Félagi tónlistarskólakennara, FT. Það er með öllu óþolandi að enn eitt félagið innan Kennarasambandsins sé þvingað til að grípa til aðgerða til að ná fram eðlilegum og sanngjörnum leiðréttingum á launum sínum.

Félag grunnskólakennara minnir á að í kjarastefnu KÍ kemur skýrt fram að laun og önnur starfskjör félagsmanna skuli ávallt standast samanburð við sérfræðinga á vinnumarkaði. Það eru engin rök fyrir því að tónlistarkennurum og stjórnendum tónlistarskóla sé boðin lakari kjör en öðrum hópum innan Kennarasambandsins.

Stjórn og samninganefnd FG skora á Samband íslenskra sveitarfélaga að ganga nú þegar til samninga við tónlistarskólakennara og stjórnendur tónlistarskóla svo afstýra megi yfirvofandi verkfalli sem getur haft veruleg áhrif á tónlistarkennslu í landinu til lengri tíma.“