FG gerir samning við SSV uppá rúma 50 milljarða!

Pétur V. Georgsson, grunnskólakennari og frambjóðandi til formanns Félags grunnskólakennara, skrifar um kjaramál, samningatækni, launaþróun og álag sem fylgir kennarastarfinu.
FG gerði nýlega nýjan kjarasamning við SSV. Samið var til 15 mánaða. Heildarlaunagreiðslur þessa samnings eru nálægt 50 milljörðum. Hversu margir félagsmenn FG hafa gert samning í þessari stærðargráðu? Þeir sem sitja hinum megin borðsins eru sennilega flestir í fullu starfi í þessu milljarðaumhverfi.
Samninganefnd FG er skipuð grunnskólakennurum. Annars vegar þeim sem sitja í stjórn Félags grunnskólakennara, en auk þeirra eru fimm kjörnir fulltrúar úr röðum kennara, sem eru kjörnir á aðalfundi félagsins. Á aðalfundi eru einnig kosnir fimm varamenn og varamenn í stjórn FG hlaupa í skarðið ef einhver forföll verða. Er það mikilvægast þegar við setjumst við samningaborðið að það mæti 10 kennarar? Ef bara 8 mæta, er þá staðan bara ekki góð?
Væri kannski skynsamlegt að hafa með sér t.d. sérfræðing/sérfræðinga í samningagerð eða samningatækni? Væri gott að hafa lögfræðinga? Væri gott að hafa fólk í samninganefnd sem vinnur ekki við neitt annað en að gera samninga? Ef við semjum til þriggja ára þá er virði samningsins yfir 100 milljarðar. Gerð kjarasamnings er flókið og umfangsmikið verkefni og eitt af vandamálum FG í gegnum tíðina að mínu mati er hvernig við höfum nálgast það verkefni. Félagið þarf að feta sig inn á nýjar brautir. Auðvitað verðum við að passa að gefa ekki eftir nein réttindi, það hefur gerst allt of oft og auðvitað verðum við að passa að fá það sem allir aðrir á vinnumarkaði eru að fá, eins og styttingu vinnuvikunnar. Stærsta verkefnið er svo að passa að launin okkar verði á eðlilegum stað við lok næsta kjarasamnings!
Næsti kjarasamningur FG skiptir sköpum
í ljósi þess samkomulags sem var gert við opinbera starfsmenn (meðal annars grunnskólakennara) árið 2016, þar sem undirritaður var samningur um að lækka lífeyrisávinnslu opinberra starfsmanna, gegn loforði um það að laun og önnur kjör hjá hinu opinbera verði samkeppnisfær, kemur upp sérstök staða fyrir næstu kjarasamninga FG. Oft er krafan á vinnumarkaði sú að semja þurfi við alla á sömu forsendum. Þetta fyrirbæri hefur heitið mörgum nöfnum í gegnum tíðina og hefur haft það í för með sér að kennarar hafa setið eftir í launum, þar sem alltaf er talað um að ef einn hækkar, þurfi allir að hækka.
Núna er einstakt tækifæri. FG mætir með loforð frá viðsemjanda sínum í næstu samninga sem segir að hann ætli sér að semja um meira heldur en almenni markaðurinn, öðruvísi er ekki hægt að jafna kjör félagsmanna. Þá ætti að vera tækifæri til að semja annars vegar um þær hækkanir sem þarf til, til að tryggja aukinn framgang og hins vegar þær hækkanir sem þarf að semja um, til að gera eins og allir hinir sem eru að semja um laun.
Einhverra hluta vegna mættum við ekki með þetta loforð í síðustu samninga og heldur ekki þar síðustu þó að loforðið sé frá 2016.
Þar þurfum við svo að passa okkur á mistökum sem hafa oft einkennt samninga félagsins. Kjarasamningar FG innihalda aldrei launaskrið. Það fyrirbæri er í fréttum nánast mánaðarlega og er talað um launavísitölu. Hún virðist hækka í hverjum mánuði þrátt fyrir Lífskjarasamninginn og loforðið um að samningurinn okkar sé eins og hinna, allir fylgjast að, nema við. Það sem gerist hjá kennurum þegar við hækkum skv. Samningi er að til verður ný launatafla, allir færast til og eftir það hækkar nánast enginn í stéttinni í launum. Á almennum markaði gerist þetta líka með launatöfluna, en oft gengur vel hjá fyrirtækjum og þá hækka laun starfsfólks, stundum ætlar einhver að hætta í starfi, en til að koma í veg fyrir að hann fari, fær hann hærri laun. Stundum er launaviðtal og jú launin hækka.
Munurinn á þessari þróun hefur orðið til þess að launin okkar eru orðin skammarlega lág. Samningur kennara er alltaf um hámarkshækkanir, á meðan flestir sem eru í samflotinu gera samning um lágmarkshækkanir. FG verður að hætta að taka þátt í þessu, þannig að launin sitji ekki alltaf eftir.
Hvað er annað á borðinu en laun?
Mjög margt þarf að laga í vinnuumhverfi félagsmanna FG. Þau mál snúa bæði að því sem er að gerast almennt á vinnumarkaði, en ekki síður að þeim þjóðfélagsbreytingum sem hafa orðið undanfarin ár. Samsetning nemendahópa hefur breyst mjög mikið, nemendum með annað móðurmál heldur en íslensku hefur fjölgað mikið og sú fjölgun verður sennilega enn meiri í framtíðinni. T. d. er verkefnið sem fylgir 1-2 þúsund nýbúum frá stríðshrjáðri Úkraínu ekki auðvelt fyrir skólakerfið.
Auðvitað er hægt að leysa allt, en til þess þarf margt að breytast. Verkefnum grunnskólakennara hefur fjölgað með hverju ári í mörg ár. Margvíslega sérfræðiþekkingu þarf í meiri mæli inn í grunnskólana eins og sálfræðinga, talmeinafræðinga, þroskaþjálfa og iðjuþjálfa ásamt öllum þeim sérfræðingum sem nemendur hafa þörf fyrir.
Öll gögn sýna að grunnskólakennarar þurfa að hafa mikið fyrir starfinu sínu. Kulnun og flótti úr stéttinni hefur verið að aukast ár frá ári og það verða að eiga sér stað breytingar ef ekki á illa að fara.
Eitt af því sem er hægt að skoða til að létta á því álagi sem fylgir starfinu er að semja um lækkun kennsluskyldu. Ég sé það sem einu raunhæfu leiðina til að stytta vinnuviku kennara. Í nýjum samningi FG hefur verið samið um styttingu upp á 13 mínútur á dag, en því fylgir engin niðurskurður á verkefnum. Það sem þarf þá að gerast til að styttingin raungerist, er að skera niður undirbúning sem hefur bein áhrif á gæði skólastarfs. Verkefnin fara ekkert þó að kennari hafi heimild til að fara fyrr heim. Nú þegar vinna margir kennarar meira heldur en umsaminn vinnutími segir til um, heimild til að fara fyrr breytir því ekki. Grunnskólakennarar vinna vel og eru stoltir af starfinu sína og sýna það í verki á hverjum degi.
Er framtíðin björt í grunnskólum landsins?
Næstu ár hafa mikið um það að segja hvernig skólarnir verða mannaðir. Ef launaþróun okkar verður svipuð og undanfarin ár, verður mikill flótti úr stéttinni. Ef álag á kennara heldur áfram að aukast, verður enn meiri flótti úr stéttinni.
Það er velvilji í samfélaginu gagnvart kennurum og flestir skilja mikilvægi þess að sá sem kennir barninu þínu þarf að vera fagaðili, en ekki bara einhver sem hefur áhuga á börnum. Börnin eru langverðmætustu eignir hvers heimilis, laun þeirra sem bera ábyrgð á þeim verðmætum í skólum landsins ættu að endurspegla það.