FG boðar atkvæðagreiðslu um vinnustöðvun

Fréttir|16. apríl 2014

Samninganefnd Félags grunnskólakennara hefur falið kjörstjórn Kennarasambands Íslands að framkvæma allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna Kennarasambands Íslands í FG er starfa hjá sveitarfélögum landsins um vinnustöðvun dagana 15., 21. og 27. maí 2014 til að stuðla að framgangi fyrirliggjandi krafna félagsins.

Kjörstjórn hefur ákveðið, samkvæmt tillögu FG, að atkvæðagreiðslan fari fram með rafrænum hætti og hefjist þriðjudaginn 22. apríl 2014, kl. 10.00 og ljúki mánudaginn 28. apríl 2014, kl. 16.00.

Um atkvæðagreiðsluna

Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is. Hægt er að greiða atkvæði í hvaða nettengdri tölvu sem er.

  • Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli. Þeir sem ekki eru komnir með Íslykil geta pantað hann með því að smella á hnappinn Sækja um Íslykil sem er undir stóra bláa hnappinum Mínar síður. Þegar komið er inn á Mínar síður birtist flipi sem heitir Kosningar. Smellið á kosninguna sem heitir Atkvæðagreiðsla um vinnustöðvun FG og þá birtist atkvæðaseðillinn.
  • Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.
  • Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
  • Ef viðkomandi vill fresta því að greiða atkvæði skal smella á: Hætta við kosningu.
  • Atkvæðaseðill birtist eingöngu hjá þeim sem eru á kjörskrá. Ef einhver telur sig eiga að vera á kjörskrá en fær ekki atkvæðaseðil á Mínum síðum skal viðkomandi hafa samband við starfsmann kjörstjórnar sem athugar málið.