FF reiðubúið í stefnumótunarvinnu vegna hvítbókar
Félag framhaldsskólakennara tekur undir markmið menntamálayfirvalda um að hækka hlutfall þeirra sem ljúka framhaldsskóla á tilsettum tíma og að fleiri nemendur tilskildum lágmarksviðmiðum í lestri. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ályktun stjórnar FF um hvítbók um umbætur í menntun.
FF leggur á hinn bóginn áherslu á að áfram verið fjölbreyttar námsleiðir í boði og íslenska stúdentsprófið verið áfram öflugur grunnur undir nám á háskólastigi. „Félagið dregur í efa réttmæti þess að setja jafnaðarmerki milli styttingar námstíma til stúdentsprófs og minna brottfalls,“ segir í ályktuninni.
Þá tekur FF undir það sjónarmið sem birtist í hvítbókinni að umbótum í menntakerfinu verði ekki komið á nema með aðkomu kennara og samtaka þeirra. FF er reiðubúið að taka þátt í þeirri stefnumótunarvinnu.
Ályktunin var samþykkt á fundi stjórnar Félags framhaldsskólakennara 29. ágúst síðastliðinn.