FF: Opinn fundur með frambjóðendum í Gerðubergi

Frambjóðendur til formanns FF, Guðmundur Björgvin Gylfason og Guðríður Arnardóttir, munu ávarpa fundinn og síðan verða umræður með þátttöku gesta í sal.
Opinn fundur með frambjóðendum til formanns og stjórnar Félags framhaldsskólakennara verður haldinn í Gerðubergi fimmtudaginn 22. febrúar. Fundurinn hefst stundvíslega klukkan 20.00.
Frambjóðendur til formanns FF, Guðmundur Björgvin Gylfason og Guðríður Arnardóttir, munu ávarpa fundinn og síðan verða umræður með þátttöku gesta í sal.
Frambjóðendur til formanns kynna sig og stefnumál sín hér.
Að loknum umræðum formannskandidatanna munu frambjóðendur til stjórnar FF stíga í pontu og kynna sig í stuttu máli. Kynningar frambjóðenda til stjórnar eru hér.
Fundarstjóri verður Þórhallur Gunnarsson og verður fundurinn sendur út á netinu, á vef Netsamfélagsins.
Félagar í FF eru hvattir til að sækja fundinn, heyra hver eru helstu hitamál frambjóðenda og beina spurningum til þeirra.
UPPFÆRT 26. FEBRÚAR 2018: