FF og FS vísa kjaradeilu til ríkissáttasemjara

Fréttir|26. september 2024

Félag framhaldsskólakennara og Félag stjórnenda í framhaldsskólum hafa vísað kjaradeilu sinni við ríkið til embættis ríkissáttasemjara.

Stjórnir og samninganefndir Félags framhaldsskólakennara (FF) og Félags stjórnenda í framhaldsskólum (FS) ákváðu í gær að vísa kjaradeilu sinni við ríkið til ríkissáttaemjara. Tilkynning þess efnis hefur verið send embætti ríkissáttasemjara. 

Kjarasamningar FF og FS runnu út 31. mars síðastliðinn.