FF og FS hafa skrifað undir nýjan samning við ríkið
Fréttir|31. mars 2021

Félag framhaldsskólakennara (FF) og Félag stjórnenda í framhaldsskólum (FS) skrifuðu í dag undir samkomulag um breytingar og framlengingu á kjarasamningi við ríkið.
Félag framhaldsskólakennara (FF) og Félag stjórnenda í framhaldsskólum (FS) skrifuðu í dag undir samkomulag um breytingar og framlengingu á kjarasamningi við ríkið.
Skrifað var undir samninginn í húsnæði ríkissáttasemjara með fyrirvara um samþykki félagsmanna FF og FS.
Fyrirkomulag kynninga og atkvæðagreiðslu kynnt strax eftir páska.
Gildistími hins nýja samnings er frá 1. janúar 2021 til 31. mars 2023.