FF lýsir stuðningi við baráttu tónlistarkennara og grunnskólakennara

Fréttir|24. nóvember 2016

Stjórn Félags framhaldsskólakennara (FF) lýsir yfir fullum stuðningi við baráttu grunnskólakennara og tónlistarkennara í baráttu sinni fyrir bættum kjörum. Þetta kemur fram í ályktun sem stjórn FF sendi frá sér í gær. FF skorar á sveitarfélögin að ganga að kröfum kennarahópanna tveggja enda verði faglegu skólastarfi stefnt í uppnám verði það ekki gert. 

Ályktunin hljóðar svo í heild. 

Stjórn Félags framhaldsskólakennara lýsir yfir fullum stuðningi við baráttu grunnskólakennara og tónlistarkennara fyrir réttmætum kjaraleiðréttingum og skorar á sveitarfélögin í landinu að ganga að kröfum þeirra. Verði ekkert að gert, stefnir það faglegu skólastarfi í uppnám enda ljóst að alvarleg fækkun er fyrirséð í stéttinni. Fögur fyrirheit á tyllidögum um að gera starf kennara meira aðlaðandi fyrir ungt fólk eru ekki pappírsins virði ef ekki fylgja þeim fjármunir.

Stjórn FF – 23. nóvember 2016