FF boðar til fulltrúafundar
Fréttir|25. ágúst 2016
Félag framhaldsskólakennara boðar til fulltrúafundar föstudaginn 9. september 2016. Fundað verður á Grand Hóteli Reykjavík og mun fundurinn standa frá klukkan 10 til 16.
Formenn félagsdeilda, fulltrúar FF í stjórn Vísindasjóðs FF/FS, kjörstjórn, uppstillingarnefnd, stjórn, samninganefnd og skólamálanefnd eru boðaðir til fundarins. Í lögum FF segir:
„Þau ár, sem ekki er haldinn aðalfundur, skal stjórn félagsins boða til fulltrúafundar þar sem m.a. er fjallað um starfsemi félagsins og starfsáætlun og starfsemi félagsdeilda auk þess sem gefið er yfirlit yfir fjárhagsstöðu félagsins og Vísindasjóðs FF og FS.“ (10. gr.)
Fulltrúafundir FF eru opnir öllum félagsmönnum.