FF boðar til almenns félagsfundar á miðvikudag

Fréttir|23. mars 2015

Félag framhaldsskólakennara boðar til almenns félagsfundar um stöðuna í samningamálum. Fundurinn er haldinn samkvæmt beiðni tæplega 200 félaga í Tækniskólanum, Menntaskólanum í Reykjavík, Fjölbrautaskóla Suðurlands, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og Menntaskólanum á Laugarvatni sem barst til stjórnar FF 14. mars síðastliðinn. 

Fundurinn verður haldinn í Menntaskólanum við Hamrahlíð næstkomandi miðvikudag, 25. mars, klukkan 17 til 19. 

Félagar sem ekki hafa tök á því að sækja fundinn en hyggjast fylgjast með honum í vefútsendingu geta sent athugasemdir og spurningar í gegnum Twitter. Þar þurfa þeir að stofna aðgang sem tekur örfáar mínútur. Til þess að spurningarnar eða athugasemdirnar komist til skila þarf að hefja þær á #FelFrhskkennara. Heildarlengd hvers tísts er 140 slög svo mikilvægt er að framsetning sé hnitmiðuð. Hægt verður að fylgjast með fundinum á vef Netsamfélagsins í hvaða nettengdri tölvu sem er. 

Fyrst verða haldnar nokkrar stuttar framsögur (hámark 3 til 5 mínútur hver) frummælenda fulltrúa talsmanna og stjórnar um fundarefnið. Því næst fara fram almennar umræður og skoðanaskipti. Félagsmenn sem hafa hug á því að halda stuttar framsögur (hámark 3-5 mín) eru beðnir að setja sig í samband við Önnu Maríu Gunnarsdóttur (anna@ki.is) fyrir klukkan 16 þriðjudaginn 24. mars.

Upplýsingar um netútsendinguna og dagskrá fundarins verða sendar út um leið og þær liggja fyrir. Vakin er athygli á að félagið greiðir ekki ferðakostnað vegna fundarins. Fundurinn er opinn öllum félagsmönnum.