FF auglýsir eftir liðsauka

Til að byrja með er ráðið í stöðuna til eins árs með möguleika á framhaldsráðningu. Umsóknarfrestur er til 24. ágúst. Umsækjendur eru beðnir að senda ferilskrá ásamt umsókn á formann félagsins, Guðríði Arnardóttur, gudridur@ki.is, sem jafnframt veitir upplýsingar um starfið. Í umsókn þurfa að koma fram upplýsingar um menntun og reynslu, sem og umsagnaraðila.
Félag framhaldsskólakennara (FF) auglýsir eftir þjónustufulltrúa í fullt starf á skrifstofu félagsins.
FF er eitt aðildarfélaga Kennarasambands Íslands og til húsa í Kennarahúsinu að Laufásvegi 81.
- Menntunarkröfur: Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Æskilegt er að viðkomandi hafi leyfisbréf sem framhaldsskólakennari.
- Reynsla: Kennslureynsla í framhaldsskóla er kostur, ásamt þekkingu á opinberri stjórnsýslu.
- Verkefni: Aðstoð við félagsmenn varðandi vinnumat, réttindamál og túlkun kjarasamnings. Samskipti við félagsmenn og annað sem til fellur á hverjum tíma.
- Hæfniskröfur: Færni mannlegum samskiptum og þjónustulipurð.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Til að byrja með er ráðið í stöðuna til eins árs með möguleika á framhaldsráðningu. Umsóknarfrestur er til 24. ágúst.
Umsækjendur eru beðnir að senda ferilskrá ásamt umsókn á formann félagsins, Guðríði Arnardóttur, gudridur@ki.is, sem jafnframt veitir upplýsingar um starfið. Í umsókn þurfa að koma fram upplýsingar um menntun og reynslu, sem og umsagnaraðila.