FF auglýsir eftir framboðum
Fréttir|24. janúar 2014
Uppstillingarnefnd FF auglýsir eftir framboðum og tilnefningum til eftirfarandi trúnaðarstarfa á vegum félagsins sem kjósa skal til á aðalfundi FF 20. - 21. mars 2014:
- Fimm fulltrúar í samninganefnd
- Formaður skólamálanefndar
- Tveir fulltrúar í stjórn Vísindasjóðs FF/FS og einn til vara
- Einn fulltrúi í stjórn Kennarasambands Íslands
- Þrír fulltrúar í kjörstjórn og tveir til vara
- Þrír fulltrúar í uppstillingarnefnd og tveir til vara
- Tveir skoðunarmenn reikninga og einn til vara
Framboð og tilnefningar skulu berast sem fyrst til uppstillingarnefndar eða til starfsmanns nefndarinnar Önnu Maríu Gunnarsdóttur, anna@ki.is.
Í uppstillingarnefnd eru:
Anna Sigríður Davíðsdóttir, anna@ma.is
Guðjón Ragnar Jónasson, gudjonr@mr.is
Halldís Ármannsdóttir, ha@fb.is