Ferðin á Utís 2021

Fréttir|1. desember 2021

Hildur Arna Håkansson, náttúrufræðikennari í Skarðshlíðarskóla, segir frá ferð sinni á Utís 2021.

Utís var haldið á Sauðárkróki 5. - 6. nóvember síðastliðinn. Það fer ekki milli mála hjá þeim sem hafa fylgst með ráðstefnunni síðustu ár hve mikill kraftur býr í skólafólkinu okkar. Þetta árið var engin undantekning, enda tvö ár síðan Utís var haldið í raunheimum. Þótt Utís online 2020 hafi verið skemmtilegt er þetta tvennt ólíkt að mínu mati. Það er svo gott að eiga samtöl augliti til auglitis, geta verið saman í hóp og grúskað í því sem við erum að kynna okkur. 

Þetta er ferðasagan mín, Hildar Örnu Håkansson, náttúrufræðikennara í Skarðshlíðarskóla í Hafnarfirði.

Fimmtudagurinn 4. nóvember 

Ég og Theodóra, ferðafélaginn minn og samstarfskona, lögðum af stað úr Hafnarfirði rétt upp úr klukkan 13. Fyrsta stopp var í Borgarnesi þar sem við hittum fullt af Utís-förum, meðal annars gamla samstarfsfélaga úr Hafnarfirði. Tilfinningin var eins og ég væri á leið á ættarmót að hitta ættingja sem ég hafði ekki séð í lengri tíma. 

Við komum inn á Sauðárkrók upp úr klukkan 17, fundum gististaðinn okkar og hittum fljótlega sex snillinga sem deildu með okkur gististað. Það mikilvægasta við ferð á Utís er að koma við í Kaupfélaginu og kaupa eitthvað fínerí svo við drifum okkur þangað (ef þú hefur ekki komið þangað þá er bara að drífa sig á Krókinn!). 

Næst var að finna sér bita og svo héldum við á beint streymi frá hlaðvarpsþættinum The Partial Credit (Er á Spotify – ég mæli með!) í 1238: The Battle of Iceland. Tveir stjórnenda þáttarins voru fyrirlesarar á ráðstefnunni þetta árið, þeir Jesse Lubinsky og Donnie Piercey. Já, ekki er hægt að segja annað en að gleði og hlátur hafi einkennt þetta frábæra upphitunarkvöld fyrir ráðstefnuna.

Föstudagurinn 5. nóvember 

Ráðstefnugestir mættu galvaskir, eins og beljur að vori, í íþróttahúsið í Árskóla klukkan níu. Ítrustu sóttvarna var gætt þannig að allir ráðstefnugestir þurftu að sýna neikvætt hraðpróf. Leikurinn Hver gæti verið með covid? var virkjaður. Við fengum grímur, límmiða með nafninu okkar, nafnspjöld, ígrundunarbók og fjölnota bollamál. Segja má að fæst okkar hafi trúað því að við værum komin á staðinn enda svo ótrúlega margt sem getur gerst á þessum covid-tímum. Gaman var að heyra hlátrasköllin óma og málbeinið lék lausum hala.

Dagskráin hófst og kynntir voru níu erlendir fyrirlesarar; þau Andrea Strutin, Christine Lion-Bailey, Donnie Piercey, Jesse Lubinsky, Leticia Britos Cavagnaro, Micah Shippee, Meenu Singh, Natalia LeMoyne Hernandez og Pernille Ripp auk þriggja íslenskra fyrirlesara sem voru Hans Rúnar Snorrason, Bergmann Guðmundsson og ég.

Fyrir hádegi leiddu Leticia og Meenu, kennarar við Stanford háskólann, ásamt Ingva Hrannari, okkur í gegnum hópefli þar sem allir ráðstefnugestir fóru saman í skæri, blað, steinn, við eignuðumst covid-„handabands“ vin og sögðum frá sögu nafnsins okkar. Þetta þjappaði þessum frábæra hóp enn betur saman.

Næst á dagskrá var skólaheimsókn í Árskóla. Eins og alltaf gátum við skoðað mjög fjölbreytta kennslu, allt eftir okkar áhuga. Að þessu sinni áttum við að nálgast heimsóknina með því hugarfari að við værum geimverur sem vissum ekkert um skóla og skólastarf, sem var mjög áhugavert.

Að skólaheimsókninni lokinni fórum við aftur í íþróttahúsið til Leticiu og Meenu og fórum í verkefnavinnu þar sem við áttum að hanna framtíðina. Þetta verkefni var einstaklega áhugavert þar sem við áttum að fjarlægja einhvern þátt skólakerfisins eins og við þekkjum það núna. Þannig gátum við fjarlægt frímínútur, skólanámskrána, einkunnir, skólastjórnendur, skólahúsnæðið og meira að segja okkur kennarana. Við áttum að kanna hvaða afleiðingar, bæði góðar og slæmar, það gæti haft í för með sér. Gaman var að sjá hve ólíkt hóparnir unnu með þetta og hvaða hugmyndir við höfðum um afleiðingar og orsakir þess að taka út hlekki sem við teljum mikilvæga.

Að þessu sinni áttum við að nálgast heimsóknina með því hugarfari að við værum geimverur sem vissum ekkert um skóla og skólastarf sem var mjög áhugavert.

Eftir hádegi var ég með Breakout EDU vinnustofu og fékk til mín 24 snillinga víðs vegar að af landinu. Krafturinn í hópnum var einstakur sem sást helst á hve margir báðu um aðgang í Facebook-hópinn Breakout EDU Ísland að námskeiði loknu en fyrir áhugasama má einnig benda á síðuna bit.ly/Breakout_Island sem ég, Nanna María Elfarsdóttir, kennari í Brekkubæjarskóla á Akranesi, og Ingvi Hrannar Ómarsson höldum utan um. Á síðunni má finna Breakout EDU leiki á íslensku.
Föstudagskvöldið er svo aðalkvöldið þegar við komum saman, borðum góðan mat og njótum samverunnar. Ættarmótsstemningin hélt áfram og spurningin hverra manna ert þú varð skemmtilegur samkvæmisleikur. Fljótlega var fólk farið að rekja saman ættir sínar, komst óvænt að vinskap foreldra sinna eða kynntist ættingja samstarfsfélaga. Myndabásinn var allsráðandi og gamlir og nýir vinir festu sig saman á filmu. Gleðin hélt áfram fram á nótt hjá sumum þar sem sungið var undir gítarspili, einhverjir fóru að leggja sig en ég fór ásamt nokkrum öðrum og naut sýningarinnar sem himingeimurinn bauð upp á.

Laugardagurinn 6. nóvember 

Komið var að síðasta degi ráðstefnunnar og við trúðum því vart hve tíminn leið hratt. Dagskráin hófst klukkan níu með ígrundun á því sem á undan hafði gengið. Þá var komið að menntabúðum og eins og venjulega var hlaðborðið stórt og fjölbreyttar kynningar í boði. Ég hafði hugsað mér að koma víða við en festist svo hreinlega í hláturjóga hjá Eddu Björnsdóttur, kennara í Melaskóla. Nokkur stund af hlátrasköllum leiddi til nýrra samtala og vináttu, fyrir utan það hvað allt var fyndið það sem eftir lifði dags!

Menntahraðstefnumótið tók svo við. Það sem þar var kynnt kveikti marga neista eins og glöggt má sjá ef #menntaspjall á Twitter er skoðað. Þar fengu kynnendur 2 mínútur til að kynna eitthvað sniðugt sem þeir nýta sér í kennslu. Þar var t.d. verið að kenna að spila á gítar, hvernig skoða má hvað og hvernig nemendur hafa áhuga á að læra, stemningsspjöld þar sem nemendur fá myndræna rödd, fjallað um Minecraft, kökugerð með QR-kóðum og fleira og fleira.

Donnie Piercey tók svo við en hann talaði um hvernig við ættum ekki að láta tækifæri okkar með nemendur renna úr greipum okkar. Það var gaman að heyra hann segja okkur frá því hvernig hann hefur tekið hugmyndir nemenda sem eru í 5. bekk og framkvæmt þær, til dæmis með að uppfæra myndir á google maps. Rödd nemenda er nefnilega svo dýrmæt og gaman að heyra hvað þau eru hugmyndarík og frjó.

Að lokum var komið að seinni vinnustofunni. Ég sótti vinnustofu Meenu og Leticiu þar sem þær fjölluðu um að hanna snjallari framtíð með gervigreind (AI - Artificial intelligence). Á vinnustofunni ögruðum við Siri og skoðuðum hvaða spurningum henni hefði verið kennt að svara og hverju hún gæti ekki svarað. Í framhaldi af því skoðuðum við hvernig vélmenna-aðstoðarmann við myndum vilja ef hann byðist okkur. Mjög góðar og snjallar umræður spruttu um það, sérstaklega þegar við veltum fyrir okkur hvort vélmennið ætti að vera með tilfinningar eða ekki og eins hvort það ætti að bregðast við tilfinningum okkar eða ekki. Við fengum svo að hanna vélmenni fyrir einstaklinga sem þurfa á persónulegum aðstoðarmanni að halda. Tveir hópar fengu sömu einstaklinga og áttu svo að deila sínum hugmyndum á milli sín. Í okkar tilfelli var þetta einstaklingur með sykursýki. Þetta var mjög lærdómsríkt verkefni og ég er strax farin að sjá hvernig ég get nýtt þetta í framhaldinu og hvernig þetta nýtist nemendum til framtíðar.

Utís var svo slitið rétt um 15:30 og það sást að okkur fannst tíminn hafa liðið of hratt og við vorum ekki tilbúin að yfirgefa þetta skapandi og nærandi umhverfi. Það sem Utís gaf var ótrúlega margt og mikið, hausinn er að springa úr hugmyndum og þakklæti fyrir að hafa verið hluti af Utís 2021 fjölskyldunni. 

Ef þú ert forvitin/n um ferðasögur fleiri Utís-fara hvet ég þig til að skoða #utis2021 og #menntaspjall á Twitter, helst með popp og drykk að eigin vali ásamt því að hafa skriffæri og bréfsefni við höndina.

Ferðasaga Hildar Örnu birtist í Skólavörðunni, 2. tbl. 2021