Ferðatími er vinnutími

Þurfi starfsfólk að ferðast vegna vinnu sinnar t.d. á milli starfsstöðva eða inna vinnu af hendi utan fastrar starfsstöðvar að kröfu vinnuveitanda, hvort sem það er innan- eða utanlands, þá telst ferðatíminn til vinnutíma. Vinnutíma skal greiða. Á þetta hefur reynt í nokkrum dómsmálum.
Ekki er heimilt að draga aksturtíma frá kjarasamningsbundnum undirbúningstíma þeirra sem sinna kennslu, eða tíma til endurmenntunar, enda þurfa þeir sem sinna kennslu að undirbúa sig jafn mikið fyrir kennslu og þörf til endurmenntunar skerðist ekki þurfi starfsfólk að sinna akstri til viðbótar við kennslustörf.
Héraðsdómur Norðurlands vestra komst að þeirri niðurstöðu að vinnuveitanda bæri að greiða þeim einstaklingum sem sinntu tónlistarkennslu á fleiri en einni starfsstöð Tónlistarskólans í Skagafirði fyrir þann tíma sem fór í akstur, þ.e.a.s. ferðatíma.
Einnig reyndi á það hvort vinnuveitanda bæri að greiða fyrir ferðatíma þegar starfsmaður Samgöngustofu, sem starfaði sem flugvirki, var sendur af Samgöngustofu í vinnuferð til útlanda. Hæstiréttur komst þá að þeirri niðurstöðu að ferðatími í vinnuferðum teldist vinnutími. Undir rekstri málsins var leitað álits EFTA-dómstólsins og var álit hans að ferðatími utan hefðbundins vinnutíma til annars áfangastaðar en hefðbundinnar starfsstöðvar, til að inna af hendi störf eða skyldur að kröfu vinnuveitanda, teldist vinnutími.